fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Helga Jónsdóttir leysir Bjarna af sem forstjóri OR

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 19. september 2018 21:30

Helga Jónsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Stjórn Orkuveitu Reykjavíkur ákvað á fundi sínum í kvöld að fallast ósk Bjarna Bjarnasonar forstjóra að stíga til hliðar meðan fram fer óháð úttekt á vinnustaðarmenningu og málefnum tiltekinna starfsmanna sem verið hafa til umfjöllunar.

Í hans stað verður Helga Jónsdóttir, fyrrverandi stjórnarmaður hjá Eftirlitsstofnun EFTA, starfandi forstjóri um tveggja mánaða skeið, frá næsta mánudegi. Jafnframt samþykkti stjórnin formlega að ráðast í þá úttekt sem einhugur er um að fara þurfi í.

Þetta kemur fram í tilkynningu frá OR:

Stígur til hliðar

Bjarni Bjarnason, sem ráðinn var forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur snemma árs 2011, óskaði eftir því síðastliðinn mánudag við Brynhildi Davíðsdóttur stjórnarformann að stíga tímabundið til hliðar sem forstjóri á meðan þau mál sem komið hafa upp yrðu skoðuð og úttekt gerð á vinnustaðarmenningu fyrirtækisins. Hann sagðist telja það afar mikilvægt bæði í þágu starfsmanna og almennings að sú skoðun fari fram. Þar mættu ákvarðanir hans ekki vera undanskildar. Stjórn samþykkti samhljóða að verða við ósk Bjarna og að Helga verði starfandi forstjóri um tveggja mánaða skeið, frá mánudeginum 24. september.

Helga Jónsdóttir

Helga hefur gegnt ýmsum opinberum stjórnunarstörfum, verið borgarritari, ráðuneytisstjóri, bæjarstjóri í Fjarðabyggð og nú síðast stjórnarmaður í ESA, Eftirlitsstofnun EFTA í Brussel. Hún lét af því starfi í lok árs 2017. Helga var varaformaður stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur á árunum 2010-2011.

Óháð úttekt

Fyrir fundi stjórnar lá einnig tillaga um að ráðast í óháða úttekt á vinnustaðarmenningu hjá OR og tilteknum starfsmannamálum sem verið hafa til umræðu. Innri endurskoðun Reykjavíkurborgar mun vinna úttektina með utanaðkomandi sérfræðingum á þessu sviði. Var stjórnarformanni falið að ganga frá endanlegu samkomulagi þar um. Úttektin verður tvíþætt; annars vegar á vinnustaðarmenningu og hinsvegar á þeim starfsmannamálum sem verið hafa í umræðu. Niðurstöður hennar eiga að liggja fyrir innan þeirra tveggja mánaða sem settur forstjóri er ráðinn til.

Brynhildur Davíðsdóttir, formaður stjórnar OR

„Við erum að glíma við vanda sem finnst víða – áreitni á vinnustöðum. Nú tel ég að forsendur hafi skapast fyrir því hér hjá Orkuveitu Reykjavíkur að trúverðug og óháð úttekt verði gerð. Þannig geti starfsmenn fyrirtækisins og eigendur þess treyst því að staða mála hjá OR verði skýrð og öll tækifæri til úrbóta nýtt.

Ég er mjög þakklát stjórninni fyrir að taka svo skjótt og með afgerandi hætti á þeim erfiðu verkefnum sem við okkur blasa og Bjarna Bjarnasyni fyrir að skapa svigrúm fyrir þá nauðsynlegu vinnu sem nú er framundan. Með Helgu höfum við fengið afar traustan einstakling til að halda utan um vinnustaðinn í fjarveru Bjarna. Það er mikilvægt að stjórnin var samhljóða um hennar ráðningu.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki