fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

ASÍ segir fjárlagafrumvarpið ekki gefa tilefni til bjartsýni fyrir kjaraviðræður: „Verkalýðshreyfingin mun ekki horfa aðgerðarlaus á þessa þróun“

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 19. september 2018 18:00

Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Miðstjórn Alþýðusambands Íslands hefur ályktað um fjárlagafrumvarp ríkisstjórnarinnar, sem hún segir „rýrt innlegg“ og ekki gefa tilefni til bjartsýni fyrir komandi kjaraviðræður, þrátt fyrir samtöl verkalýðshreyfingarinnar og ríkisins á liðnum misserum:

„Fjárlagafrumvarp ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gefur ekki tilefni til mikillar bjartsýni í þeim kjaraviðræðum sem í hönd fara, þrátt fyrir yfirlýsingar stjórnvalda í samskiptum við verkalýðshreyfinguna um aukna áherslu á félagslegan stöðugleika. ASÍ hefur undanfarin ár gagnrýnt stjórnvöld harðlega fyrir að þyngja skattbyrði þeirra tekjulægstu stöðugt á sama tíma og þeir tekjuhærri hafa notið skattalækkana. Í fjárlagafrumvarpinu fyrir næsta ár er reyndar skorið á sjálfvirka skattalækkun hinna ríkari, sem er jákvætt, en það er hins vegar dapurlegt að ríkisstjórnin ríghaldi í það fyrirkomulag að þyngja skattbyrði þeirra verst settu með sjálfvirkum hætti. Verkalýðshreyfingin mun ekki horfa aðgerðarlaus á þessa þróun.“

Einnig er skerðing bóta gagnrýnd og stefna ríkisstjórnarinnar um að fórna láglaunafólki á víglínu breytinga á vinnumarkaði:

„Húsnæðis- og vaxtabætur eru áfram skertar þrátt fyrir þá alvarlegu stöðu sem er á húsnæðismarkaði, sem bitnar verst á þeim sem hafa minnst handa á milli. Það er ánægjulegt að barnabætur hækka skv. frumvarpinu, en á sama tíma er aukið við tekjutengingu á millitekjufólk og jaðarskattar þess hækkaðir með auknum skerðingum. Það eru kaldar kveðjur ríkisstjórnarinnar til ungs fólks sem vill stofna fjölskyldu, koma sér þaki yfir höfuðið og eignast börn.

ASÍ hefur lengi vakið athygli stjórnvalda á því, að þeir sem eru með minnsta menntun eru líklegir til að missa fyrstir vinnuna í fjórðu iðnbyltingunni sem nú bankar á dyrnar. Í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar sér þess engan stað að til standi styðja og styrkja lágtekjufólk svo það fái annað tækifæri til náms, þrátt fyrir mikla umræðu í samráðsferli vinnumarkaðarins við stjórnvöld undanfarna mánuði. Þannig er Fræðslusjóður enn einu sinni sveltur. Kinnroðalaust stillir ríkisstjórnin láglaunafólki með litla menntun í fremstu víglínu andspænis þeim breytingum sem eru yfirvofandi á vinnumarkaði. Hún skilar auðu.

Það má finna ýmislegt jákvætt í fjárlagafrumvarpi ríkisstjórnarinnar, eins og aukið fé til réttinda launafólks í vinnumarkaðssjóðunum og ýmsa þætti heilbrigðiskerfisins o.fl., en þau atriði sem hér er drepið á eru ekki sæmandi samfélagi sem vill láta kenna sig við velferð og jöfnuð.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins