Mynd dagsins er tekin af Stefáni Pálssyni, sagnfræðingi, sem deilir henni á Twitter.
Stefán minnist á að nýtt malbik hafi verið lagt í Eskihlíðinni í ágúst og í september hafi akreinalínur verið málaðar á götuna.
Þær hafi síðan verið máðar „snyrtilega út, (Enginn tekur eftir neinu.)“ og nýjar línur málaðar í staðinn.
Af myndinni að dæma virðist skiptingin þó heldur ójöfn ef miðað er við nýju akreinalínuna. Akreinin hægra megin virðist ansi breið, á kostnað þeirrar vinstri.
Ágúst: nýtt malbik lagt á Eskihlíðina.
September: akreinalínur málaðar á götuna.
Líka í september: nýjar línur málaðar við hliðina á þeim gömlu, þær máðar snyrtilega út. (Enginn tekur eftir neinu.) pic.twitter.com/fcq2TLWdSz— Stefán Pálsson (@Stebbip) September 17, 2018