fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Alþjóðleg æfing sprengjusérfræðinga hafin

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 18. september 2018 07:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Árleg æfing sprengjusérfræðinga, Northern Challenge, er haldin á Suðurnesjum um þessar mundir. Um er að ræða alþjóðlega NATO-æfingu sem Landhelgisgæslan stýrir og fer hún fram á starfssvæði Landhelgisgæslunnar á öryggissvæðinu á Keflavíkurflugvelli og hafnarsvæðum í Helguvík, Höfnum, Garði og í Hafnarfirði. Þetta er í sautjánda sinn sem æfingin er haldin, samkvæmt tilkynnningu frá Landhelgisgæslunni.

Tilgangur Northern Challenge er að æfa viðbrögð við hryðjuverkaárásum þar sem heimatilbúnum sprengjum hefur verið komið fyrir. Búinn er til samskonar búnaður og fundist hefur víðs vegar um heim og aðstæður hafðar eins raunverulegar og kostur er. Æfingin fer fram við fjölbreyttar aðstæður, t.d. á flugvelli, í höfnum, í skipi og við bryggju. Þá er jafnframt virkjuð sérhæfð stjórnstöð þar sem öll uppsetning og verkfyrirkomulag er samkvæmt alþjóðlegum ferlum Atlantshafsbandalagsins.

Æfingin veitir sprengjusérfræðingum, sem koma hvaðanæva að úr heiminum, einstakt tækifæri til að samhæfa aðgerðir auk þess að miðla reynslu og þekkingu sinni til annarra liða. Northern Challenge hefur notið mikilla vinsælda á undanförnum árum og hefur skipað sér sess sem ein mikilvægasta æfing sprengjusérfræðinga í Evrópu. Að þessu sinni eru þátttakendurnir frá 16 þjóðum og alls eru 25 lið skráð til leiks. Æfingin stendur yfir í um tvær vikur og að henni koma hátt í 300 manns.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“

Sagan muni dæma þau og tíminn leiða í ljós hvað það muni kosta Reykvíkinga – „Þetta eru daprir tímar“
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða

Guðbergur býður sig fram til forseta – Mun minnka við sig ef hann flytur til Bessastaða