fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Yfir 30 þúsund manns fara gangandi, hjólandi eða akandi um Hlemmtorg dag hvern

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 20. ágúst 2018 12:45

Mynd- reykjavik.is

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Gert er ráð fyrir að Hlemmtorg verði líflegt og mikilvægt borgarrými í miðborg Reykjavíkur til framtíðar. Tillögurnar sem voru valdar í vor, í kjölfar hugmyndasamkeppni um framtíð og þróun Hlemmtorgs fanga anda þess og viðhalda um leið fjölbreyttum samgönguleiðum og mannlífi. Umhverfis- og skipulagssvið Reykjavíkurborgar lét af þessu tilefni framkvæma samgöngutalningu við Hlemmtorg núna í sumar,“ segir í tilkynningu frá Reykjavíkurborg.

Talningar fóru fram valda daga í júní, júlí og ágúst, einn dag í hverjum mánuði. Talið var fjórum sinnum yfir daginn, tvo tíma í senn, frá 8 að morgni til 9 að kvöldi. Einungis var talin umferð inn á torgið til að koma í veg fyrir tvítalningu.

Niðurstöður talninga gefa sterklega til kynna að daglega á milli klukkan 8 og 21 gangi allt að 23 þúsund vegfarendur inn á Hlemmtorg, 1.400 manns hjóli og 7 þúsund bílar aki. Samtals eru því um fleiri en 30 þúsund manns sem fara gangandi, hjólandi eða akandi um Hlemmtorg dag hvern. Nefna má, til að setja tölurnar í samhengi, að 18 þúsund manns búa í Grafarvogi og um 26 þúsund á Suðurlandi.

Þessar talningar verða notaðar við endurhönnun svæðisins og gerð deiliskipulags sem er að fara í gang. En tillögur arkitektastofanna Mandaworks og DLDvoru valdar til áframhaldandi þróunarvinnu við Hlemm fyrir þá vinnu.

Stefnt er að því að nýtt deiliskipulag liggi fyrir í haust og að þá geti hönnunarvinna hafist. Talningarverkefnið við Hlemm verður endurtekið núna í haust. Einnig er stefnt að því að framkvæma sambærilega talningu eftir breytingu torgsins og bera saman við eldri niðurstöður.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins