Samkvæmt spá ISAVIA um áætlaðan fjölda ferðamanna sem fari í gegnum Keflavíkurflugvöll árið 2018, var gert ráð fyrir alls 10 milljónum ferðamanna. Nú er útlit fyrir að þeir verði 335 þúsund farþegum færri en spár gerðu ráð fyrir, eða sem nemur íbúafjölda Íslands. Það gerir rúmlega 900 farþegum færri hvern dag. Þetta er haft eftir Guðjóni Helgasyni, upplýsingafulltrúa ISAVIA, í Morgunblaðinu í dag.
Ástæðurnar eru sagðar lækkun tyrknesku lírunnar ásamt meiri stöðugleika fyrir botni Miðjarðarhafs, ásamt samkeppni um ferðamenn í Evrópu sem Ísland muni finna fyrir. Einnig er hækkandi verðlag á Íslandi sagt hafa áhrif, en Ísland sé þó áfram í góðri stöðu, hér sé enn vöxtur, bara ekki jafn mikill og áður, að sögn Gunnars Más Sigurfinnssonar, framkvæmdastjóra sölu- og markaðssviðs Icelandair:
„Síðustu misseri hefur kviknað áhugi á svæðum sem fóru af kortinu fyrir nokkrum árum. Í kjölfar hryðjuverka og arabíska vorsins var óróasamt í mörgum löndum fyrir botni Miðjarðarhafs. Fólk hætti því að ferðast þangað. Þar má nefna Jórdaníu, Marokkó og fleiri lönd sem liðu mjög fyrir þessa breytingu sem varð í heiminum. Túnis er líka gott dæmi.“
Gunnar segir ferðaþjónustuna í Egyptalandi muna fífil sinn fegurri:
„Vestur-Evrópubúar fóru ekki þangað. Þá opnaðist tækifæri fyrir lönd eins og Ísland og Írland og fleiri lönd í Skandinavíu. Straumur ferðamanna þangað jókst. Við höfum notið góðs af því. Nú heyrum við hins vegar fréttir af því að eftirspurnin sé að aukast mikið í löndum á borð við Jórdaníu og Marokkó. Ferðamenn fara meira þangað. Það er enda ekki álitið eins hættulegt og áður. Þegar ógn steðjar að minnkar heimurinn. Þótt þessi lönd séu vissulega ólík Íslandi er markhópurinn sem sækir þau heim í mörgum tilfellum sá sami og sækir Ísland heim. Þetta er fólk sem er að sækjast eftir upplifun og einstökum stöðum sem hafa upp á eitthvað sérstakt að bjóða, líkt og íslenska náttúran hefur getið sér gott orð fyrir.“