Ásthildur Lóa Þórsdóttir, kennari og formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hyggst bjóða sig fram sem formann Neytendasamtakanna, samkvæmt tilkynningu.
Hún er fimmti frambjóðandinn í embættið og fyrsta konan. Hún mun etja kappi við þá Jakob S. Jónsson, leiðsögumann og leikstjóra, Guðjón Sigurbjartsson, viðskiptafræðing, Guðmund Hörð Guðmundsson, fyrrum formann Landverndar og Breka Karlsson, forstöðumann Stofnunar um fjármálalæsi.
„Þörfin á sterkum samtökum neytenda hefur sjaldan eða aldrei verið brýnni en núna. Allur almenningur hefur með einum eða öðrum hætti fundið fyrir aukinni misskiptingu í þjóðfélaginu á eigin skinni. Við höfum horft á fé flytjast á fárra hendur og fundið fyrir vanmætti okkar gagnvart hækkunum á eldsneyti, tryggingum, vöxtum, verðbótum, leigu, þjónustugjöldum, lyfjakostnaði eða komugjöldum á spítala, svo fátt eitt sé nefnt.
Í ákvörðunum stjórnvalda er tekið tillit til hagsmuna stórra fyrirtækja og fjársterkra aðila sem jafnvel eiga sína fulltrúa í ráðum og nefndum, oftar en ekki á kostnað hagsmuna neytenda.
Það er mál að linni! Við þurfum öflug Neytendasamtök sem eru óhrædd við að „taka slagi“ til að verja hagsmuni almennings.
Ég tel að barátta mín fyrir því að lögboðin réttindi neytenda á fjármálamarkaði séu virt, sýni það og sanni að ég er málefnaleg og rökföst auk þess að vera óhrædd í baráttu við sterkustu öfl þjóðfélagsins.
Oft var þörf en nú er nauðsyn, þess vegna býð ég mig fram.
Ásthildur Lóa Þórsdóttir“