fbpx
Þriðjudagur 07.maí 2024
Eyjan

Kennara vantar í leikskóla og 1600 börn á biðlista: „Ólíðandi að tuttugu árum síðar standi biðmál í borginni nokkurn veginn í stað“

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 13. ágúst 2018 09:05

Hildur Björnsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Hildur Björnsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins, skrifar í dag um biðlistavanda leikskóla Reykjavíkur. Fréttablaðið greinir frá því í dag að ekki muni skýrast að fullu hvernig ganga muni að taka inn ný börn af biðlistum fyrr en í næstu viku, en leikskólarnir eru flestir þegar teknir til starfa eftir sumarleyfi. Þetta hefur skapað mikla óvissu hjá foreldrum, en vandinn er tvíþættur; annars  vegar eru það 1600 börn sem eru á biðlista og annarsvegar gengur illa að ráða starfsfólk og leikskólakennara. Mun Skóla- og frístundaráð funda um málið þann 21. ágúst.

Hildur bendir á í pistli sínum að sami vandi sé uppi nú og fyrir 20 árum, þegar R-listinn var við völd í borginni. Hún segir meirihlutann hafa sofið á verðinum:

(Millifyrirsagnir eru Eyjunnar)

„Í kosningasjónvarpi árið 1998 fjallaði Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, þáverandi borgarstjóri, um stöðu biðlista á leikskólum Reykjavíkurborgar. Leikskólamál voru kosningamál og 1.600 börn sátu í biðstöðu eftir leikskólaplássi. Í kosningasjónvarpi árið 2018 fjölluðu frambjóðendur um stöðu biðlista á leikskólum Reykjavíkurborgar. Leikskólamál voru kosningamál og 1.600 börn sátu í biðstöðu eftir leikskólaplássi. Fjöldi barna á biðlistum borgarinnar var sá sami og tuttugu árum fyrr. Fulltrúar Samfylkingar í borgarstjórn hafa ítrekað gert lítið úr biðlistavanda leikskólanna – vandi 1.600 biðlistabarna væri enginn þar sem 1.300 börn hefðu fengið boð um leikskólavist í ágúst. Boðið var þó auðvitað háð fyrirvara um mönnun leikskólanna. Boðið fól líka í sér minnst hálfs árs bið eftir leikskólavist. Hálfs árs tekjumissir og fjarvera frá vinnu er flestu ungu fjölskyldufólki þungbær.“

Ósamræmi í svörum

„Nýlega kom fram að minnst tvö hundruð leikskólakennara vantaði til starfa í Reykjavík. Illa hafi gengið að manna leikskóla Reykjavíkurborgar. Nýliðun í stétt leikskólakennara gangi hægt og hlutfall faglærðra væri hvergi lægra en í Reykjavík. Við blasti vandi fyrir fjölmargar fjölskyldur. Í ljósi tíðindanna kölluðu fulltrúar Sjálfstæðisflokks í skóla og frístundaráði eftir upplýsingum um stöðu ráðningarmála á leikskólum borgarinnar. Í svörum skóla- og frístundasviðs kom fram að allir leikskólar sem opnað hefðu eftir sumarleyfi væru fullmannaðir. Það væri því enginn þekktur mönnunarvandi að svo stöddu. Það skaut því skökku við þegar foreldrar barna á leikskólanum Steinahlíð fengu samdægurs erindi þess efnis að börn þeirra gætu ekki hafið leikskólavist vegna mönnunarvanda. Ætla má að staðan verði sú sama á fleiri leikskólum borgarinnar. Engar markvissar aðgerðir í sjónmáli.“

Biðmál í borginni ólíðandi – Engin breyting á 20 árum

„Það er ólíðandi að tuttugu árum síðar standi biðmál í borginni nokkurn veginn í stað. Fólksfjölgun hefur vissulega verið einhver á tímabilinu, en þó ekki nema tæp 19%. Fjölmörg framfaraskref hafa verið stigin í jafnréttisbaráttunni. Konur hafa rutt sér til rúms á vinnumarkaði og meirihluti fjölskyldna treystir á starf leikskóla. Þeir eru viðurkenndur hluti af grunnþjónustu sveitarfélaga og eru nú skilgreindir sem fyrsta skólastigið. Leikskólamál eru forgangsmál – þau eru jafnréttismál – en meirihlutinn hefur sofið á verðinum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu

Sigmundur Ernir skrifar: Auðlindir í auðmannaþágu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Ólafur Ragnar tekur sér Eirík Fjalar til fyrirmyndar og telur sig vera höfund þjóðarsáttarinnar

Orðið á götunni: Ólafur Ragnar tekur sér Eirík Fjalar til fyrirmyndar og telur sig vera höfund þjóðarsáttarinnar
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu

Kristrún greinir frá breytingum í reglum um framboðslista flokksins – Möguleiki á prófkjöri um efsta sæti og uppstillingu á þau næstu
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd

Viðtöl við forsetaframbjóðendur: Halla Tómasdóttir í hljóði og mynd
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Guðmundur Ingi leiðir Vinstri græn lokaskrefin samkvæmt nýrri Gallup-könnun

Orðið á götunni: Guðmundur Ingi leiðir Vinstri græn lokaskrefin samkvæmt nýrri Gallup-könnun
Eyjan
Fyrir 1 viku

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu

Uppnám í breska Íhaldsflokknum – Þingmaður genginn í Verkamannaflokkinn sem hann segir verða að komast til valda til að bjarga heilbrigðiskerfinu