fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

5,4% FJÖLGUN ERLENDRA FARÞEGA Í JÚNÍ

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 9. júlí 2018 14:41

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Brottfarir erlendra farþega frá Íslandi um Keflavíkurflugvöll í júní síðastliðnum voru tæplega 234 þúsund talsins samkvæmt talningum Ferðamálastofu og Isavia í Flugstöð Leifs Eiríkssonar eða um tólf þúsund fleiri en í júní á síðasta ári.

Fjölgunin nam 5,4% á milli ára sem er mun minni fjölgun en hefur mælst milli ára í júní síðastliðin ár.

Bandaríkjamenn voru fjölmennastir í júní eða um 40% af heildarfjölda og fjölgaði þeim um 29,1% milli ára.

Veruleg fækkun var frá Þýskalandi og sama má segja um farþega frá Norðurlöndunum.

Frá áramótum hefur um ein milljón erlendra farþega farið úr landi um Keflavíkurflugvöll sem er 5,5% fjölgun miðað við sama tímabil í fyrra.

5,4% fjölgun erlendra farþega í júní

 


Fjölgun í júní*

Farþegum í júní fjölgar nú um 5,4% milli ára sem er mun minni fjölgun en verið hefur síðustu ár. Fjölgunin í júní hefur verið að jafnaði 21,1% milli ára síðastliðin fimm ár mest frá 2015 til 2016 eða 35,8%.

Bandaríkjamenn tveir af hverjum fimm

Á grafinu hér til hliðar má sjá tólf fjölmennustu þjóðernin í júní. Brottfarir Bandaríkjamanna voru 39,7% af heild en þeir voru 29,1% fleiri í ár en á síðasta ári. Næstfjölmennastir voru Þjóðverjar eða 7,0% af heild í ár en þeir voru 24,3% færri en árið 2017. Þar á eftir komu Bretar eða 5,5% af heild en þeim fækkaði um 7,4% milli ára.

Samsetning farþega hefur breyst verulega síðustu ár, einkum vegna fjölgunar Bandaríkjamanna. Þannig hefur þeim fjölgað úr 21 þúsundi árið 2014 í tæp 93 þúsund í ár, sem er ríflega þreföldun.

 

Dregið hefur úr fjölgun

 

Sé tímabilið frá áramótum skoðað (janúar-júní) í samanburði við sama tímabil nokkur ár aftur í tímann má glögglega sjá að dregið hefur verulega úr þeirri fjölgun sem verið hefur síðustu ár. Á myndinni hér til hliðar má sjá samanburð fjögur ár aftur í tímann, sem sýnir þetta vel. Frá áramótum hefur verið 5,5% fjölgun en á sama tíma fyrir ári var hún 39,1%. Næstu tvö tímabil þar á undan hafði fjölgun á milli ára verið á bilinu 29-35% milli ára.

 

 

 

 

8% fjölgun frá stærsta markaðssvæðinu

Sé breytingin skoðuð nánar eftir mörkuðum má sjá að dregið hefur úr fjölgun frá öllum mörkuðum í samanburði við fyrri ár. Norðurlandabúum og Bretum hefur fækkað um 6% það sem af er ári en Mið- og Suður-Evrópubúar hafa staðið í stað. N-Ameríkönum hefur fjölgað um 8% en mesta aukningu, eða 18%, má greina hjá þeim sem flokkast undir „annað“ en þar undir eru meðal annars Asíubúar og Austur-Evrópuþjóðir. Nánari skiptingu þess hóps má sjá á skífuritinu hér neðar á síðunni.

 

Breytt samsetning

Þegar hlutfallsleg samsetning brottfara er skoðuð á tímabilinu janúar til júní síðastliðin fimm ár má sjá að samsetning hefur breyst nokkuð eins og sjá má af grafinu hér til hliðar. Hlutdeild Norður-Ameríkana hefur aukist ár frá ári en hún mældist 31,9% árið 2018. Norðurlandabúar hafa verið í kringum 8% af heild fyrri hluta ársins síðastliðin tvö ár en var hærri á árunum 2014-2016. Sama má segja um Breta en hlutdeild þeirra hefur minnkað með árunum. Hlutdeild Mið- og Suður-Evrópubúa hefur staðið í stað en þeirra sem falla undir ,,annað“ aukist umtalsvert.

 

 

Betri greining með fjölgun þjóðerna í talningu

Sá hópur sem hefur stækkað hvað mest samanstendur af ,,öðrum þjóðernum“ en þar á meðal eru Asíuþjóðir. Til að fá betri mynd af samsetningu farþega var þjóðernum í talningum fjölgað úr 17 í 32 í júní á síðasta ári, en þar var meðal annars bætt við Hong Kong-búum, Indverjum, Suður-Kóreumönnum, Singapúrbúum og Taívönum. Niðurstöður úr talningum sýna að 8,3% farþega það sem af er ári má rekja til Japana og Suðaustur-Asíubúa og 6,2% til Austur-Evrópubúa.

 

 

 

Ferðir Íslendinga utan

Um 71 þúsund Íslendingar fóru utan í júní í ár eða 14,4% fleiri en í júní 2017. Samtals voru brottfarir Íslendinga á tímabilinu janúar til júní tæp 333 þúsund talsins eða 11,7% fleiri en á sama tímabili árið 2017.

 

*Nánari upplýsingar

Talning Ferðamálastofu og Isavia er hugsuð sem viðbótarupplýsingar við farþegatölur Isavia til að geta greint fjölda ferðamanna til landsins eftir þjóðernum. Um er að ræða handtalningu áður en komið er inn á brottfararsvæði og tölurnar ber að skoða með þeim fyrirvörum sem aðferðafræðin felur í sér. Talningarnar ná yfir alla sem fara í gegnum hefðbundna öryggisleit.
Ítreka ber að flestir skiptifarþegar eru ekki inn í þessum tölum. Niðurstöður úr könnun sem Isavia lét framkvæma meðal brottfararfarþega á fyrsta ársfjórðungi ársins benda til að um 93% brottfararfarþega séu að heimsækja Ísland í persónulegum eða viðskiptalegum tilgangi og að 3,5% séu erlendir ríkisborgarar búsettir hérlendis til skemmri eða lengri tíma. Þeir sem millilenda án þess að fara út af flugvellinum séu 1,9% og þeir sem millilenda og nýta tækifærið til að fara út af flugvellinum og heimsækja einhverja staði séu 2,0%. Sjá nánar
Skiptingu milli þjóðerna má sjá í töflunni hér að neðan og nánari upplýsingar undir liðnum Tölur og útgáfur / Fjöldi ferðamanna hér á vefnum.

Skipting milli þjóðerna

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 2 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga

Mannréttindadómstóll Evrópu slær á puttana á íslenska ríkinu – Brutu gegn rétti til frjálsra kosninga
EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd

Svarthöfði skrifar: Skortir heimildarmynd
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun