Samkvæmt nýlegri úttekt greiningarfyrirtækisins Global Property Guide, hækkaði húsnæðisverð að raunvirði árið 2017 hvergi meira í gervöllum heiminum en á Íslandi. Samtals nam hækkunin 12,88 prósentum, sem rakin er til vaxtar í ferðaþjónustu og takmarkaðs framboðs á húsnæði, ekki síst og sér í lagi á höfuðborgarsvæðinu. Fréttablaðið greinir frá. Þá hækkaði húsnæðisverð að nafnvirði einnig mest á Íslandi árið 2017 eða um alls 15 prósent.
Er verðhækkunin sögð sú mesta frá árinu 2005, en næst mesta hækkunin var í Hong Kong með 12,81 prósent og þá Írland með 11,92 prósent. Til samanburðar má nefna að í Svíþjóð nam hækkunin 6,11 prósentum en í Noregi lækkaði raunverðið um 0,60 prósent.