fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Ljósmæðradeilan leyst í bili og yfirvinnubanni ljósmæðra aflýst

Ágúst Borgþór Sverrisson
Laugardaginn 21. júlí 2018 22:08

Ljósmynd: DV/Hanna

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkomulag hefur náðst um að sérstakur gerðadómur kveði upp úr um launahnækkarnir til ljósmæðra. Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu sem lögð verður til atkvæðagreiðslu á næstu dögum. Ljósmæðrafélag Íslands hefur samþykkt að aflýsa yfirstandandi yfirvinnubanni ljósmæðra.

Fréttatilkynning frá Ríkissáttasemjara um málið er svohljóðandi:

„Ríkissáttasemjari hefur lagt fram miðlunartillögu í deilu Ljósmæðrafélags Íslands og fjármála- og efnahagsráðherra f.h. ríkissjóðs. Tillagan felur í grundvallaratriðum í sér sambærilegar hækkanir og samningur aðila frá 29. maí sl. og gildistími er 31. mars 2019. Djúpstæður ágreiningur hefur verið í milli samningsaðila um það hvort launasetning stéttarinnar sé í samræmi við álag, menntun og inntak starfs ljósmæðra. Sá ágreiningur hefur m.a. staðið í vegi fyrir því að aðilar undirriti kjarasamning og því felur tillagan í sér að sérstökum gerðardómi verði falið að kveða upp úr um það hvort og þá að hvaða leyti þessir þættir eigi að hafa frekari áhrif á launasetningu stéttarinnar. Ríkissáttasemjari skipar þrjá menn í gerðardóminn sem er annars sjálfstæður í störfum sínum. Skal gerðardómurinn ljúka störfum sínum eigi síðar en 1. september 2018. Kjaradeilunni var vísað til ríkissáttasemjara þann 5. febrúar 2018. Kjarasamningurinn hafði verið laus síðan 1. september 2017, þegar gerðardómur sá er síðast ákvarðaði laun ljósmæðra rann út. Þegar málinu var vísað til ríkissáttasemjara höfðu samningsaðilar fundað fimm sinnum en án árangurs og vísaði félagið því deilunni til sáttasemjara. Fundurinn í dag er sá fimmtándi hjá ríkissáttasemjara. Tillagan verður kynnt félagsmönnum og fjármála- og efnahagsráðherra á næstu dögum og greiða samningsaðilar um hana atkvæði fyrir kl. 12.00, miðvikudaginn 25. júlí 2018. Miðlunartillagan verður ekki birt öðrum en þeim sem hlut eiga að máli fyrr en atkvæði hafa verið greidd um hana. Samhliða framlagningu tillögunnar samþykkir Ljósmæðrafélag Íslands að aflýsa yfirstandandi yfirvinnubanni.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 5 dögum

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“

„Vilt ekki að það sé eitt barn í fjölskyldunni sem er vanrækt á kostnað hinna“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega

Guðjón Auðunsson: Áhyggjur af því að áhrif vaxtahækkana eigi eftir að bíta almenning alvarlega