fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Stéttarfélag borgar fyrir auglýsingar frambjóðanda til ASÍ

Bjartmar Oddur Þeyr Alexandersson
Laugardaginn 21. júlí 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kosningar um forseta ASÍ munu fram í október á 43. þingi ASÍ og taka um 280 manns þátt í þeirri kosningu. Er þessum 280 fulltrúum dreift á verkalýðsfélög eftir fjölda félaga í hverju félagi fyrir sig. Baráttan er formlega hafin þar sem Sverrir Mar, framkvæmdastjóri Starfsgreinafélags AFLs, hefur tilkynnt framboð sitt til forseta ASÍ og er sá eini sem hefur tilkynnt framboð sitt. Gylfi Arnbjörnsson hefur setið sem forseti ASÍ síðan 2008. Eftir að Ragnar Þór Ingólfsson sigraði í kosningum um formann VR og Sólveig Anna Jónsdóttir sigraði í kosningum um formann Eflingar, veiktist staða Gylfa gífurlega innan ASÍ, sérstaklega eftir að Ragnar Þór, formaður VR, lýsti yfir vantrausti á störf Gylfa.

Gylfi tilkynnti svo þann 20. júní síðastliðinn að hann hygðist ekki bjóða sig fram aftur til áframhaldandi setu sem forseti ASÍ eftir 10 ára starf hjá sambandinu. Sama dag tilkynnti Sverrir Mar um framboð sitt. Þegar Gylfi tilkynnti þetta sagði hann: „Í þeim deil­um virðist því miður sem per­sóna mín, í stað skoðana minna, sé orðin aðal­atriði og þá á kostnað mál­efna­legr­ar umræðu.“

Stéttarfélagið greiðir auglýsingar um greinarskrif Sverris á Facebook

Í samtali við DV sagði Sverrir að það væri ekkert athugavert við það að fjármunir félaga í AFLi væru notaðir til að auglýsa greinarskrif hans á Facebook-síðu AFLs. „Þetta fer bara eftir því hvernig þú orðar hlutina. Ég orða það þannig að við erum í átaki í samfélagsmiðlum og við plöggum hlutum sem við höldum að veki athygli.“ Sagði Sverrir Mar einnig að stjórn AFLs styddi framboð hans til forseta ASÍ. Stjórn AFLs hittist á fundi og birti niðurstöðu sína á heimasíðu sinni. Á heimasíðunni segir: „Niðurstaða fundarins var að nú þegar ljóst er að sitjandi forseti hyggst ekki gefa kost á sér – mun AFL starfsgreinafélag stíga fram og bjóðast til að axla ábyrgðina.“

Að sögn Sverris hefur AFL greitt um 20 þúsund krónur í að auglýsa greinarskrif hans á sérstakri Facebook-síðu félagsins, eftir að hann opinberlega tilkynnti um framboð sitt til forseta ASÍ.

Að sögn Halldórs Grönvold, aðstoðarframkvæmdastjóra og deildarstjóra félagsmáladeildar ASÍ, í samtali við DV, eru engar reglur til staðar hjá ASÍ vegna kostunar á kosningabaráttu frambjóðenda í forsetaframboði ASÍ. „Það eru bara engar reglur til um það á vettvangi Alþýðusambandsins,“ segir Halldór aðspurður hvort formaður einhvers stéttarfélags gæti notað fjármuni félagsins til að styðja við sína eigin kosningabaráttu og jafnvel fjármagnað kosningabaráttu sína: „Ég myndi áætla að það væri frekar mál verkalýðsfélagsins en ekki ASÍ. Ég veit ekki alveg hvar sú kostnaðarsama kosningabarátta ætti að fara fram.“

Sverrir Mar Albertsson, framkvæmdastjóri AFLs starfsgreinafélags.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki