fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Hótelið rekst ekki á áform um stækkun flugvallarins

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 20. júlí 2018 07:30

Helstu aðstandendur verkefnisins með flugstöðina í baksýn

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nýtt 150 herbergja Courtyard flugvallarhótel Marriott keðjunnar mun ekki þrengja að framtíðar stækkunarmöguleikum flugvallarins þar sem það rís á lóð sem liggur utan við mörk yfirráðasvæðis Isavia. Fram kom við fyrstu skóflustunguna síðdegis í dag að aðstandendur framkvæmdanna hyggi á uppbyggingu enn frekari þjónustu við flugvöllinn í kjölfar opnunar hótelsins.

Á lóðinni, sem gefið hefur verið nafnið Aðaltorg, kemur einnig til greina að opna matvöruverslun sem verði opin allan sólarhringinn. Þegar er komin þar ÓB eldsneytisstöð á vegum Olís og þá hafa bílaleigur, sem eru með starfsemi á flugvellinum, verið í óða önn að koma sér fyrir á nærliggjandi lóðum. Þar hafa þær fengið úthlutað meira landrými til að geyma og afhenda þúsundir bílaleigubíla sem ferðamenn notast við á ferðum sínum um landið. Gert er ráð fyrir því að farþegar sem gisti á hótelinu eða þurfi að sækja bílaleigubíl ferðist í framtíðinni með sérstökum gjaldfrjálsum skutlum sem verði í áætlunarakstri frá flugstöðinni, en ferðin tekur á bilinu 2-4 mínútur. Slíkar skutlur eru algeng sjón við erlenda flugvelli.

Rósa Ingvarsdóttir og Hólmfríður Eyja með hornstein byggingarinnar sem kom upp úr fyrstu skóflunni

Það var Rósa Ingvarsdóttir, framkvæmdastjóri Álftavíkur sem er leiðandi fjárfestir í verkefninu, sem tók fyrstu skóflustunguna með stórri beltagröfu síðdegis í dag. Gröfturinn fór fram undir vökulum augum starfsmanna Íslenskra aðalverktaka sem hefjast handa við byggingaframkvæmdir strax á morgun.

Meðal viðstaddra við skóflustunguna í dag voru sveitarstjórnarmenn í Reykjanesbæ og nokkrir þingmenn Suðurkjördæmis. Lýstu þeir mikilli ánægju með nýja flugvallarhótelið, en um milljarða framkvæmdir er að ræða. Bæjarstjóri Reykjanesbæjar, Kjartan Már Kjartansson, sagði þarna vera um mikilvægan áfanga að ræða. Byggingaraðili hótelsins, Aðaltorg ehf. í Reykjanesbæ, á alls byggingarétt upp á tæpa 25.000 fm á lóðinni og sér fyrirtækið fyrir sér að þar muni byggjast upp fjölbreytt stoðþjónusta við flugvöllinn, ferðafólk, áhafnir flugfélaga og annað starfsfólk. Áfram sé gert ráð fyrir vexti í fjölda farþega sem fara um völlinn.

Uppbygging þjónustu komi til með að styrkja Reykjanesið sem ferðamannastað
Reykjanesið hefur ekki farið varhluta af þeirri aukningu sem verið hefur í ferðamennsku hér á landi og hefur fjöldi gistinátta á svæðinu margfaldast. Áður fyrr var úrval afþreyingar takmarkað í næsta nágrenni við flugvöllinn. Úr því hefur þó verið bætt hægt og bítandi á síðustu árum og hafa aðstandendur Aðaltorgs komið að markaðssetningu svokallaðra „Blue Diamond“ ferða en í þeim gefst jafnt tengifarþegum og öðrum ferðamönnum sem stoppa stutt við á landinu tækifæri til að skoða helstu náttúruperlur Reykjanesskagans í skipulagðri rútuferð og er þá komið við hjá Gunnuhver, Valahnúk, Reykjanesvita, Kleifarvatni, Krísuvík og Bláa lóninu svo fátt eitt sé nefnt.

  • Verslun, þjónusta og eldsneyti á meðal annarra þarfa ferðalanga sem uppfyllt verða á Aðaltorgi við enda Reykjanesbrautar, 2 mínútum frá flugstöðinni
  • Skutlur munu flytja fólk á hótelið og á ný athafnasvæði bílaleiga á sömu slóðum
  • Telja að hótelið og önnur þjónusta sem byggjast mun upp á Aðaltorgi muni styrkja Reykjanes sem áfangastað ferðamanna. Bjóða skipulagðar ferðir.
  • Áfram gert ráð fyrir vexti í fjölda farþega sem fara um Keflavíkurflugvöll

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus