fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Þorvaldur Gylfason: „Ferill Alþingis frá hruni er hroðalegur“ 

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. júlí 2018 09:22

Þorvaldur Gylfason

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þorvaldur Gylfason, prófessor í Hagfræði við Háskóla Íslands, vandar Alþingi ekki kveðjurnar í pistli í Fréttablaðinu í dag. Hann byrjar á Þingvallafundinum:

„Alþingi hélt í gær hátíðarfund á Þingvöllum svo þingmenn gætu fagnað 100 ára fullveldisafmæli í friði fyrir þjóðinni. Fundurinn kostaði 80 m.kr. Hann var kynntur svo á vefsetri þingsins: „Á þingfundinum er ætlunin að samþykkja ályktun sem full samstaða er um.“ Alþingi er að segja: Við erum lægsti samnefnarinn. Lömbin komast ekki lengra en ljónin leyfa.“

Þorvaldur finnur sök hjá Alþingi fyrir flest það sem miður hefur farið í þjóðfélaginu frá hruni og segir stjórnmálamenninguna í molum:

„Ferill Alþingis frá hruni er hroðalegur á heildina litið. Hrunið var einkum Alþingi að kenna. Það var Alþingi sem einkavæddi bankana með því að leggja þá í hendur óhæfra eigenda úr vinahópi valdsins. Áður hafði Alþingi afhent útvegsmönnum ókeypis aðgang að sameignarauðlindinni í sjónum. Meðal þeirra sjö embættis- og stjórnmálamanna sem rannsóknarnefnd Alþingis taldi hafa sýnt af sér vanrækslu í skilningi laga fyrir hrun voru þrír alþingismenn og ráðherrar og einn fv. slíkur, samtals fjórir af sjö. Alþingi sat og stóð eins og bankarnir buðu. Tíu þingmenn af 63 skulduðu bönkunum 100 m.kr. eða meira hver og einn skv. skýrslu RNA. Ekki hefur enn verið greint frá því hvort eða hvernig skil voru staðin á þessum skuldum. Alþingi lofaði bót og betrun eftir hrun, m.a. með því að samþykkja einum rómi ályktun um „að taka verði gagnrýni á íslenska stjórnmálamenningu alvarlega og … að af henni verði dreginn lærdómur“. Þetta heit var ekki efnt. Af þeim fjórum evrópsku ráðherrum sem fundust í Panama-skjölunum voru þrír Íslendingar. Tveir þeirra sitja enn á þingi og eru formenn flokka sinna. Ekki hefur enn verið greint frá því hvort mál þeirra voru rannsökuð. Meint brot 57 sjómanna voru rannsökuð og kærð.“

Þorvaldur segir Alþingi hafa rofið skilorðið þegar kemur að efndum á loforðinu að semja nýja stjórnarskrá. Hann segir skýringuna blasa við:

„Of margir þingmenn nærast á mismunun í kvótakerfinu og kjördæmaskipaninni, mismunun og meðfylgjandi mannréttindabrotum sem nýju stjórnarskránni er ætlað að hemja. Of margir þingmenn nærast á leynd og meðfylgjandi spillingu. Fólkið í landinu hefur t.d. ekki aðgang að upplýsingum um (afskrifaðar) lánveitingar bankanna til stjórnmálamanna. Of margir þingmenn senda lýðræðinu langt nef án þess að blikna. Þeir skáka í skjóli þess að lýðræði á nú undir högg að sækja víða úti í heimi. Forseti Bandaríkjanna situr undir ámæli fyrir að ögra lýðræðinu heima fyrir og víðar. Hann situr á tifandi tímasprengju.“

Þorvaldur nefnir að ríkisstjórnin hér heima sitji einnig á tifandi tímasprengju:

„Launahækkun alþingismanna um 45% 2016 var stríðsyfirlýsing á hendur launþegum. Reyndir menn á vinnumarkaði sjá fram á heiftarlegt uppgjör, þ.e. kollsteypu af völdum Alþingis, annaðhvort verkföll eða verðbólgugusu með gamla laginu. Alþingi er að vísu ekki eitt um hituna heldur hafa margir forstjórar fyrirtækja einnig skammtað sjálfum sér og hver öðrum ofurlaun. Alþingi virðist ætlast til að fólkið í landinu fagni 100 ára afmæli fullveldisins í skugga þeirrar skammar sem þingið hefur kallað yfir land og þjóð, einkum með því að synja nýju stjórnarskránni staðfestingar. Síðasta ríkisstjórn sat í níu mánuði. Ríkisstjórnin næst á undan hrökklaðist einnig frá völdum vegna hneykslismála. Hvernig væri að halda áfram að knýja fram kosningar á níu mánaða fresti þar til við fáum skaplega skipað Alþingi? – þing sem nýtur trausts.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“