fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Biskup Íslands ráðstafar 230 hektara af landi til Skógræktarfélags Íslands

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 19. júlí 2018 16:45

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Á Skálholtshátíð helgina 20-22. júlí mun Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands, fyrir hönd kirkjunnar, skrifa undir samning við Skógræktarfélag Ísalands um afnot af 230 hektara af landi í Skálholti til 90 ára. Landinu verður í framtíðinni breytt í yndisskóg með göngustígum sem fólk getur nýtt til útivistar, samkvæmt tilkynningu.

„Þessi ákvörðun er í takt við umhverfisstefnu þjóðkirkjunnar um að rækta landið og sporna við losun gróðurhúsalofttegunda, sem við gerum meðal annars með skógrækt. Við höfum einnig endurheimt votlendi á svæðinu með því að moka ofan í skurði. Þannig hefur kirkjan í Skálholti lagt sig fram um að varðveita jörðina og sköpunina.“

segir Agnes M. Sigurðardóttir biskup Íslands.

Nýr vígslubiskup í Skálholti

Fjölbreytt hátíðardagskrá verður um helgina þar sem sr. Kristján Valur Ingólfsson lætur af embætti vígslubiskups og sr. Kristján Björnsson verður vígður til embættis vígslubiskups Skálholtsumdæmis. .

„Það má segja að þetta séu tímamót í Skálholti þar sem Kristján kveður og Kristján heilsar. Ég vil þakka Kristjáni Vali fyrir gott samstarf og góða þjónustu í kirkjunni, bæði í Skálholti og annarstaðar um áratuga skeið. Ég býð Kristján Björnsson velkominn til starfa og vænti góðs samstarfs.“

segir Agnes.

Eftir vígslumessuna, sem er opin öllum, býður biskup Íslands til kaffiveitinga í Skálholtsskóla.

 

Dagskrá 20. – 22. júlí 2018

Föstudagur 20. júlí

12:00 Messa við Þorlákssæti (ef veður leyfir)

 

Laugardagur 21. júlí

09:00     Morgunbænir

13:00     Fjölbreytt dagskrá fyrir fjölskyldur og börn:

–              Grasakynning: Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur (Hefst fyrir framan Skálholtsskóla kl. 13:00)

–              Fornleifarannsóknir, kynning á uppgreftri: Mjöll Snæsdóttir fornleifafræðingur  (Fer fram við hlið Skálholtsdómkirkju og hefst kl. 14:00)

–              Fuglakynning: Gunnar Tómasson, fuglamerkingamaður  (Hefst fyrir framan Skálholtsskóla kl. 14:00)

–              Leikir og létt gaman: Leiðtogar ÆSKÞ stjórna útileikjum

16:00     Hátíðartónleikar í Skálholtsdómkirkju: Sjá dagskrá

18:00     Vesper í Skálholtsdómkirkju

21:00     Kvöldsöngur í Skálholtsdómkirkju: Íslensk þjóðlög: Benedikt Kristjánsson tenór

Sunnudagur 22. júlí 

09:00     Morgunbænir

09:30     Æfing með erlendum gestum sem taka þátt í biskupsvígslunni í Skálholtsdómkirkju

11:00     Orgeltónleikar í Skálholtsdómkirkju: Jón Bjarnason, organisti

13:15     Prósessía undirbúin í Skálholtsskóla

13:30     Biskupsvígsla: Biskup Íslands frú Agnes M. Sigurðardóttir vígir séra Kristján Björnsson til embættis vígslubiskups í Skálholtsstifti við messu í Skálholtsdómkirkju

15:00     Kaffiveitingar í Skálholtsskóla

16:15     Hátíðarsamkoma í Skálholtsdómkirkju: Hátíðarræður flytja:

–              Ragnheiður Jóna Ingimarsdóttir, framkvæmdastjóri 100 ára afmælisnefndar um fullveldi Íslands 2018

–              Dr. Ágúst Einarsson prófessor emeritus, fv. alþingismaður og rektor, flytur erindið: Kærleikur, bækur og fullveldi

18:00     Kvöldbænir : Te Deum

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki