Á miðnætti í nótt hófst yfirvinnubann ljósmæðra. Að sögn Páls Matthíassonar, forstjóra Landspítalans, er mönnunin á Landspítalanum undir öryggismörkum og fordæmir hann að ekki skuli vera efnt til samningafunda oftar. Næsti fundur hefur verið boðaður eftir helgi:
„Það er hættuástand á Landspítalanum og enn sem komið er hafa hlutirnir gengið upp með guðs hjálp, góðra manna, tilfærslum og mikilli vinnu. Uppsagnir ljósmæðra hafa hingað til bitnað á meðgöngu- og sængurlegugangi. Yfirvinnubannið mun bitna á öðrum deildum, m.a. fæðingargangi. Með banninu verður erfiðara að leita til annarra sjúkrahúsa sem hafa þjónustað okkur, eins og sjúkrahúsanna á Akureyri og Akranesi, vegna álags þar. Við þurfum að óska eftir undanþágu fyrir yfirvinnu fyrir ljósmæður til þess að uppfylla lágmarksmönnun á deildum og sóttum við um undanþágu fyrir næturvakt og dagvakt í yfirvinnubanninu,“
sagði Páll við Morgunblaðið.
Í pistli Ölmu Möller landlæknis í vikunni, kom fram að ekki mætti mikið út af bregða til að hætta skapaðist:
„Ekki er vitað hvenær næsti álagstoppur kemur – en slíkir toppar koma. Aldrei er hægt að sjá alla hluti fyrir, það er hið óvænta sem er mesta áskorunin fyrir starfsfólkið í heilbrigðiskerfinu. Augljóst er að róðurinn þyngist sífellt eftir því sem tíminn líður. Bæði þreytast þeir sem þurfa að vinna langt umfram vinnuskyldu auk þess andlega álags sem fylgir slíkum aðgerðum, slíkt skal ekki vanmeta,“
sagði Alma í pistlinum.