fbpx
Laugardagur 20.apríl 2024
Eyjan

Samkeppniseftirlitið stöðvar gjaldtöku Isavia

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 17. júlí 2018 12:31

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

„Samkeppniseftirlitið hefur í dag tekið bráðabirgðaákvörðun þar sem Isavia ohf. er gert að stöðva tímabundið gjaldtöku á ytri rútustæðum (fjarstæðum) við Flugstöð Leifs Eiríkssonar. Gjaldtakan tók gildi þann 1. mars 2018, í framhaldi af útboði og samningum um nýtingu tveggja hópferðafyrirtækja á stæðum við flugstöðvarbygginguna (nærstæði),“ segir í tilkynningu frá Samkeppniseftirlitinu í dag.

Samkvæmt þessu þarf Isavia að hætta gjaldtöku tímabundið, þar sem Samkeppniseftirlitinu finnst hún ganga gegn ákvæðum samkeppnislaga og „sennilegt“ sé að Isavia hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með „ óhóflegri verðlagningu við gjaldtöku“.

Bréf SE til Isavia má lesa hér.

Tilkynningin er eftirfarandi:

„Samkeppniseftirlitinu er heimilt að taka bráðabirgðaákvörðun, sbr. 3. mgr. 16. gr. samkeppnislaga nr. 44/2005, ef sennilegt þykir að sú háttsemi sem er til athugunar gangi gegn ákvæðum samkeppnislaga og ef líklegt þykir að bið eftir endanlegri ákvörðun leiði til röskunar á samkeppni eða að málið þoli að öðru leyti ekki bið.

Það er niðurstaða Samkeppniseftirlitsins að skilyrði til bráðabirgðaákvörðunar sé fyrir hendi. Þannig telur eftirlitið sennilegt að Isavia hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína með óhóflegri verðlagningu við gjaldtöku fyrir notkun á fjarstæðum. Jafnframt mismuni Isavia viðskiptavinum í verðlagningu og skilmálum.

Þá telur Samkeppniseftirlitið að bið eftir endanlegri ákvörðun getið skaðað samkeppni. Verði ekkert að gert muni gjaldtaka Isavia á fjarstæðum hafa veruleg skaðleg áhrif á rekstur fyrirtækja sem nýta þurfi fjarstæðin. Þá liggur fyrir að gjöld vegna stæðanna munu að óbreyttu hækka verulega þann 1. september nk., en þá verður svokallaður afsláttur á aðlögunartímabili felldur niður.

Samkeppniseftirlitið telur því að skilyrði fyrir töku bráðabirgðaákvörðunar séu fyrir hendi. Í henni felst að umrædd gjaldtaka er stöðvuð tímabundið. Gildir bráðabirgðaákvörðunin til 31. desember 2018.

Samhliða hefur Samkeppniseftirlitið sent Isavia andmælaskjal þar sem nánar er gerð grein fyrir frumniðurstöðum eftirlitsins vegna rannsóknarinnar og félaginu gefinn kostur á að koma sjónarmiðum og andmælum á framfæri áður en endanleg ákvörðun verður tekin í málinu.

Bráðabirgðaákvörðunin var birt Isavia með bréfi dags. í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Í gær

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Í gær

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 3 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir

Gamli kanslarinn vill fá skrifstofuna sína aftur – Ekki líklegt að það gangi eftir
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun

Baldur með mesta fylgið samkvæmt nýrri könnun