Með ráðningu á Ebbu Schram í starf borgarlögmanns í ágúst í fyrra, gerðist Reykjavíkurborg brotleg við jafnréttislög um jafna stöðu karla og kvenna, samkvæmt niðurstöðu kærunefndar jafnréttismála. Ástráður Haraldsson, héraðsdómari, sótti einnig um stöðuna og kærði ráðninguna á Ebbu með þeim rökum að ákveðið hefði verið fyrirfram að hún fengi starfið.
Vitnaði Ástráður í símtöl sín við borgarstjóra og fyrrum borgarlögmann, sem hefðu hvatt Ebbu til að sækja um stöðuna og gert ráð fyrir umsókn hennar um starfið. Hann bar einnig við að hann hefði meiri reynslu en Ebba og því hefði verið brotið á honum vegna kynferðis síns með ráðningu á Ebbu.
Haft var eftir borgarstjóranum Degi B. Eggertssyni í Fréttablaðinu að niðurstaðan hefði komið honum á óvart, en Dagur sat sjálfur í ráðningarnefndinni:
„Við munum að sjálfsögðu fara yfir þennan úrskurð og meta hvort við þurfum að breyta einhverju hjá okkur varðandi ráðningarferla.“
Þá er haft eftir Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur, formanni borgarráðs og oddvita Viðreisnar í Morgunblaðinu í dag, að endurmeta þurfi ferlið:
„Við munum fara vel ofan í þetta og endurmeta okkar ferli, það er engin spurning.“
Líf Magneudóttir, oddviti Vinstri grænna, sat hjá þegar ráðningin kom fyrir borgarráð:
„Ég sagði að við þyrftum að fara í gagngera endurskoðun á þessu ráðningarferli. Ég held að þessi úrskurður sé staðfesting á því.“
Sem kunnugt er var Ástráður líka einn fimmtán umsækjenda sem talinn var hæfur til að gegna embætti dómara við Landsrétt, þangað til að Sigríður Á. Andersen dómsmálaráðherra ákvað að skipa Ástráð ekki í starfið. Hæstiréttur komst síðan að því að Sigríður hefði með því brotið lög og var Ástráði dæmdar miskabætur vegna ólöglegrar málsmeðferðar.