fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

„Ógnir nútímans eru síður en svo hefðbundnar hernaðarógnir“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 12. júlí 2018 08:15

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, ásamt Gretu Horgen, prótokóll hjá NATO, Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra og Önnu Jóhannsdóttur, fastafulltrúa Íslands gagnvart NATO. Mynd-Stjórnarráðið

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Katrín Jakobsdóttir, forsætisráðherra, sótti leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins í Brussel í gær. Á fundinum var meðal annars rætt um framlög til varnarmála, fjölþátta ógnir, netöryggi, stöðu mála í Miðausturlöndum og samskiptin við Rússland og Norður-Kóreu.

Katrín ræddi um framlög Íslands til varnarmála og nauðsyn þess að efla þróunaraðstoð og mannúðaraðstoð og stuðning við flóttafólk. Þá ræddi hún sérstaklega um mikilvægi kynjajafnréttis fyrir frið í heiminum og þær ógnir sem stafa af loftslagsbreytingum. Hún gerði afvopnun að sérstöku umtalsefni, sérstaklega kjarnorkuafvopnun. Að loknum fyrri fundi leiðtoganna var vinnukvöldverður þar sem einnig voru leiðtogar Finnlands og Svíþjóðar, auk forseta Framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og forseta Leiðtogaráðs Evrópusambandsins.

„Mér fannst mikilvægt að nálgast öryggismál á breiðum grunni þar sem ógnir nútímans eru síður en svo hefðbundnar hernaðarógnir. Þær kalla á nýjar lausnir þar sem mikilvægast er að stuðla að friði með því að efla jöfnuð og jafnrétti, berjast gegn loftslagsbreytingum og leita friðsamlegra og pólitískra lausna í erfiðum deilumálum. Friðsamlegri heimur hlýtur að vera markmið okkar allra,“

sagði Katrín.

Á sama tíma fór fram sérstakur vinnukvöldverður utanríkisráðherra NATO ásamt leiðtogum samstarfsríkja NATO (Írak, Jórdanía og Túnis).

Leiðtogafundurinn hófst í dag, miðvikudaginn 11. júlí og lýkur á morgun, fimmtudaginn 12. júlí. Charles Michel, forsætisráðherra Belgíu, er gestgjafi fundarins. Í sendinefnd Íslands eru auk forsætisráðherra Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkisráðherra, Anna Jóhannsdóttir, fastafulltrúi Íslands gagnvart NATO, og embættismenn frá forsætis- og utanríkisráðuneytum.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus