Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi utanríkisráðherra Íslands, var þann 10. júlí s.l. gestafyrirlesari á málþingi á vegum Alþjóðamálastofnunar kínverska utanríkisráðuneytisins (CIIS).
Heiti fyrirlestursins var: Hvers konar kapitalismi? Hvað eiga norræna módelið og kínverska þróunarmódelið sameiginlegt? Getum við lært eitthvað af hvor öðrum?
Að framsögu lokinni spunnust umræður sérfræðinga stofnunarinnar í Evrópumálum undir stjórn Hr. Rong Ying, varaforseta stofnunarinnar. Tilefni umræðunnar var nýútkomin bók Jóns Baldvins á ensku undir heitinu: „The Nordic model vs. the neoliberal challenge“.
Undir lok málþingsins lýsti hr. Rong Ying áhuga sínum á að fá bókina þýdda á kínversku.
Hægt er að nálgast bókina á netinu: www.morebooks.de
Fyrirlestur Jóns Baldvins, sem er á ensku, má lesa hér.