Ólafur Ólafsson er ekki vinsæll maður á Íslandi. En það verður að segjast eins og er, hann er býsna naskur í peningamálum, sér hvert fjármagnið er að leita á undan öðrum, finnur hvar er arðs von. Þannig var hann býsna fljótur að rísa úr öskustónni eftir hrunið – og er kannski ekki að marki fátækari en fyrir það.
Nú er Ólafur að hætta við að koma upp hóteli með 160 herbergjum á Suðurlandsbraut 18. Hann, og félag hans sem nefnist Festir, hafa líka horfið frá áformum um að koma upp stóru hóteli á Héðinsreit, vestast í Vesturbænum.
Þetta vekur nátturlega upp stórar spurningar um ferðaþjónustuna og hina gríðarlegu uppbyggingu í kringum hana – þegar stórlax eins og Ólafur Ólafsson dregur sig í hlé með sitt fjármagn
Það er greinilegur slaki í ferðamennskunni á Íslandi, við höfum náttúrlega upplifað gríðarlegan vöxt. En því fer fjarri að við séum ein um það. 2018 verður líklega metár í túrisma í veröldinni, metið frá 2017 verður að öllum líkindum bætt.
Í Grikklandi er búist við 32 milljón ferðamönnum í ár og hefur fjölgunin verið gríðarleg síðustu árin. Jafnframt hafa menn, eins og víðar, áhyggjur af þrýstingnum á náttúruna og byggðinar.