fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Sakar RÚV um þöggunartilburði og áróður: „Öflugasta fréttastofa landsins ákveður að halda upplýsingunum frá almenningi“

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 23. júní 2018 12:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Kristinn H. Gunnarsson, fyrrum alþingismaður, birtir á heimasíðu sinni svar frá Sigríði Hagalín Björnsdóttur, varafréttastjóra RÚV, við þeirri spurningu hans af hverju Ríkisútvarpið hafi ekki birt niðurstöðu Gallupkönnunar um viðhorf Vestfirðinga til vegagerðar í Gufudalssveit, sem myndi að hluta til fara um Teigsskóg.

Könnunin var gerð þann 24. maí og leiðir í ljós að um 90% svarenda eru fylgjandi tillögu Vegargerðarinnar um veglínuna um Teigsskóg, svonefnd Þ-H leið. Könnunin var gerð að áeggjan Guðmundar Halldórssonar, skipstjóra í Bolungarvík, sem greiddi sjálfur fyrir gerð könnunarinnar, sem framkvæmd var af Gallup.

Kristinn birtir svar Sigríðar Hagalín, þar sem hún segir að RÚV hafi þá stefnu að birta ekki kannanir sem gerðar séu fyrir einstaklinga eða hagsmunahópa, þar sem tilgangurinn sé að hafa áhrif á almenning. En þó sé það ekki algilt, því það fari eftir fréttnæmi niðurstaðnanna.

Svar Sigríðar í heild er svohljóðandi:

„Fréttastofa RÚV fær upplýsingar um margar kannanir sem keyptar eru af einstaklingum eða hagsmunahópum um tiltekna, umdeilda málaflokka. Við höfum almennt tekið þá afstöðu að birta ekki niðurstöður slíkra kannana, vegna þess að í mörgum tilvikum er tilgangur þeirra að hafa áhrif á umræðu og afstöðu almennings til viðkomandi málaflokks. Auðvitað er það ekki algilt, og þess eru vafalaust dæmi að við höfum breytt út af þessari venju. Almenna reglan er að birta aðeins niðurstöður þeirra kannana sem rannsóknarfyrirtækin gera sjálf, og í sumum tilvikum þær sem aðrir fjölmiðlar hafa látið gera. Það er þó alls ekki algilt og fer eftir fréttnæmi niðurstaðnana, og yfirleitt eru einu kannanirnar sem við birtum undantekningarlaust þær sem eru gerðar fyrir okkur sjálf, og niðurstöður Þjóðarpúls Gallups, sem við höfum forgang að. Ég vona að þetta svari að einhverju leyti spurningum þínum.“

Kristinn hefur ýmislegt við þetta svar Sigríðar að athuga:

„Það fyrsta er að fjölmiðillinn Ríkisútvarp neitar að flytja upplýsingar um afstöðu Vestfirðinga til máls sem mjög er í þjóðfélagsumræðunni. Ekki er um að ræða neina tilbúnar eða skáldaðar staðhæfingar heldur niðurstöðu vandaðrar könnunar sem helsta fyrirtæki á þessu sviði framkvæmir. Um er því að ræða bestu fáanlegar upplýsingar um afstöðu Vestfirðinga til vegar um Teigsskóg. Öflugasta fréttastofa landsins ákveður að halda upplýsingunum frá almenningi. RÚV vill ekki að landsmenn viti að um 90% Vestfirðinga styðja vegagerðina. Svar RÚV gildir líka um könnun um afstöðu annarra landsmanna ef hún verður framkvæmd. RÚV myndi þegja yfir niðurstöðu þeirrar könnunar líka miðað við ofangreind svör,“

segir Kristinn á heimasíðu sinni. Hann bætir við að RÚV sé vísvitandi að halda upplýsingunum frá landsmönnum:

„Með þessari framgöngu tekur Ríkisútvarpið sér fyrir hendur að matreiða upplýsingar fyrir landsmenn og velur hvað þeir mega heyra og hvað ekki. RÚV er með þessari afstöðu vísvitandi að reyna að koma í veg fyrir að upplýsingarnar, sem eru óumdeilanlegar, hafi áhrif á afstöðu landsmanna. Þetta er auðvitað ekkert annað en ein útgáfa af umræðustjórnun sem ríkisfjölmiðillinn hefur tekið upp.“

Kristinn bendir á það misræmi og þá hræsni sem felst í svari Sigríðar, sé könnunin um teigskóg borin saman við aðrar kannanir sem RÚV greini frá:

„RÚV ber því við að tilgangur kannana sé að hafa áhrif á umræðu og afstöðu almennings. Auðvitað er það tilgangurinn í flestum tilvikum. Líka þegar RÚV segir frá Gallup könnunum um fylgi flokkanna skömmu fyrir kosningar. En það er ekki fjölmiðilsins að ritskoða fréttaflutninginn. Sé könnunun framkvæmd að viðunandi hætti á auðvitað að flytja frétt um niðurstöðuna, sérstaklega þegar um er að ræða umdeilt mál sem mjög er til umræðu. Kjósendur eða landsmenn eru fullfærir um að vinna úr þeim upplýsingum sem felast í vönduðum könnunum. Það þarf ekki einhvern skoðanastjóra hjá Ríkisútvarpinu til þess að ákveða hvað við megum fá að vita og hvað ekki.“

Þá segir Kristinn að stjórnlyndi RÚV sé áberandi þegar kemur að umhverfismálum:

„Það er eitthvað að í Ríkisútvarpinu. Þar hefur fest rætur stjórnlyndi sem brýst út í ítrekuðum illa duldum tilburðum til þess að stjórna almenningsálitinu í ýmsum málum. Sérstaklega er þetta áberandi varðandi umhverfismál eins og Teigsskógsmálið er.“

Þá segir Kristinn að RÚV hafi ekki aðeins stundað fréttabann, heldur einnig áróðursstarfsemi:

„Fréttabann er ein leiðin sem hér er vakin athygli á og harðlega gagnrýnd. Önnur er sú að ítrekað hefur RÚV fengið hagsmunaaðila til þess að gera „heimildarmynd“ um umdeild mál og þeir hafa fengið að reka sinn áróður með hlutleysisstimpli RÚV. Til þess að bæta gráu ofan á svart hefur RÚV greitt áróðursmönnunum fyrir „heimildamyndina“ og kallar það kaup á sýningarrétti. Þetta á við um myndir um lagningu raflínu í Skagafirði, laxeldi í sjó og virkjun lindár í Þingeyjarsýslu. Allir þessir þættir voru málflutningur en ekki fréttaflutningur. Auðvitað hefur RÚV ekki sýnt „heimildarmynd“ frá hinu sjónarhorninu. Það verður að segjast að ekki er búist við því að það verði gert. Þegar fjölmiðill hættir að flytja fréttir og fer að fela fréttir og reka áróður fyrir tilteknum skoðunum er komið út yfir þau mörk sem hægt er að líða. Það á við um alla fjölmiðla, en alveg sérstaklega við um RÚV.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins