Nú heyrast fréttir af börnum í búrum við landamæri Bandaríkjanna og Mexíkó. Börn sem hafa verið aðskilin frá foreldrum sínum sem leita pólitísks hælis og betra lífs í landi allsnægtanna. Hefur Trump Bandaríkjaforseti verið harðlega gagnrýndur fyrir þessa stefnu sína og mannréttindafrömuðir keppast við að fordæma þessar aðgerðir.
Fjölmargir íslendingar dreifa nú mynd af barni í búri á samfélagsmiðlum og mótmæla þessari meðferð á börnum. Gengur þeim eflaust gott eitt til enda málstaðurinn þarfur.
Þar á meðal er Ágúst Ólafur Ágústsson, þingmaður Samfylkingarinnar.
Ágúst segir nóg komið og birtir mynd af barni í búri, sem virðist afar ósátt við hlutskipti sitt. Má skilja samhengið sem svo, að um sé að ræða barn á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó:
„Nú er nóg komið, og í raun fyrir löngu. Þessi forseti Bandaríkjanna stendur fyrir ótrúlegri mannvonsku þegar hann aðskilur börn flóttamanna frá foreldrum sínum og setur í búr. Nú verða þessir íslensku ráðherrar að fordæma þessa stefnu hátt og snjallt. Ísland er Nató-þjóð með rödd sem ber að nota við svona aðstæður. Hvernig Bandaríkin eru þróast minnir margt á hvað gerist í þáttaröðinni Handmaid’s Tale, þar sem meira að segja vísun í Biblíuna er notuð sem réttlæting fyrir þessu ofbeldi. Núna verða íslenskir ráðamenn, allir með tölu, að vakna og í raun öskra. Annars ættu þeir að finna sér eitthvað annað gera.“
Myndin sem Ágúst, og fleiri aðrir, eru að nota, og má sjá efst í fréttinni, er hinsvegar ekki lýsandi fyrir aðstæður, enda ekki tekin við landamærin, af þeim börnum sem eru aðskilin foreldrum sínum. Má því segja að um einskonar falsmynd sé að ræða, en ítrekað er að fréttirnar frá landamærunum eru það ekki.
Tekið skal fram að eflaust er Ágústi Ólafi ekki kunnugt um uppruna myndarinnar.
Í víðara skoti á annarri mynd má sjá að um skipulögð mótmæli er að ræða. Aðstæður barnsins eru því kannski ekki jafn hræðilegar og hin myndin bendir til.
Myndin er tekin þann 10. júní í Dallas og var verið að mótmæla því sama og Ágúst Ólafur, að börn væru aðskilin frá foreldrum sínum við landamærin.