fbpx
Laugardagur 27.apríl 2024
Eyjan

Hægst á vexti tekna af Airbnb-leigu

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 20. júní 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Tekjur af Airbnb-útleigu á Íslandi hafa vaxið hægar á fyrstu mánuðum ársins en á sama tímabili síðustu ár. Fjöldi gistieininga vex mun hægar en áður og hefur bókunarhlutfall verið lægra í upphafi þessa árs en á sama tíma í fyrra. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Íbúðalánasjóðs um skammtímaleigu íbúða til ferðamanna og áhrif Airbnb á íslenska húsnæðismarkaðinn, sem Ólafur Heiðar Helgason, hagfræðingur hjá hagdeild sjóðsins, kynnti á opnum fundi í hádeginu í dag.

Um 6.000 gistieiningar eru nú til leigu á Airbnb á Íslandi og hefur fjöldi þeirra rúmlega tvöfaldast á tveimur árum. Ólafur áætlar að um 1.500-2.000 íbúðir og herbergi á landsvísu séu í stöðugri útleigu á Airbnb og ekki í hefðbundinni notkun sem íbúðarhúsnæði. Fram kom í erindi hans að Reykjavík er sú höfuðborg í Vestur-Evrópu sem er með næstflestar Airbnb-skráningar miðað við höfðatölu, á eftir Lissabon í Portúgal.

Airbnb gæti skýrt allt að 5-9% hækkun fasteignaverðs

Ólafur Heiðar sagði frá því að greining hagdeildar Íbúðalánasjóðs bendi til þess að fjölgun Airbnb-gistieininga geti skýrt samanlagt allt að 5-9% hækkun íbúðaverðs hér á landi á tímabilinu 2015-2017. Frekari rannsókna sé þó þörf á orsakasambandinu milli Airbnb-útleigu og húsnæðismarkaðar.

„Stóraukið framboð, bætt nýting og hærra verð í erlendri mynt hefur valdið mikilli aukningu í tekjum af Airbnb-útleigu undanfarin tvö ár, þrátt fyrir styrkingu krónunnar. Árið 2016 voru vergar tekjur af útleigu á Airbnb hér á landi um 9,4 milljarðar en í fyrra voru þær um 19,7 milljarðar. Vöxturinn nemur 110% milli ára. Til samanburðar veltu fyrirtæki sem skráð eru sem gististaðir 94 milljörðum króna árið 2017 samkvæmt tölum Hagstofunnar og velta þeirra jókst um 11% milli ára,“

sagði Ólafur Heiðar.

Landsbyggðin sækir í sig veðrið

Í mars sl. voru 30% Airbnb-íbúða og -herbergja á Íslandi staðsett í miðborg og vesturbæ Reykjavíkur en Airbnb-íbúðum á landsbyggðinni hefur hins vegar fjölgað talsvert hraðar en á höfuðborgarsvæðinu undanfarin misseri. Milli mars 2016 og mars 2018 fjölgaði íbúðum og herbergjum til leigu í miðborg og vesturbæ Reykjavíkur um 200 en utan höfuðborgarsvæðisins fjölgaði þeim um 1.400.

Útgefnum leyfum fyrir skammtímaleigu hefur þó ekki fjölgað í takt við leigueiningarnar sem skráðar eru á Airbnb. Ólafur sagði að svo virðist sem illa gangi að framfylgja reglum um að umfangsmikil skammtímaleiga íbúða skuli vera leyfisskyld. Í nóvember 2017 voru um 60% íbúða í umfangsmikilli útleigu á Airbnb ekki skráð sem atvinnuhúsnæði þrátt fyrir reglur þar um. Svo virðist sem sveitarfélög verði árlega af hundruðum milljóna króna, jafnvel yfir milljarði, í formi fasteignagjalda vegna Airbnb-íbúða.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra

Ólafur Þ. Harðarson: Afleiðing forsetaframboðs Katrínar er að Bjarni Ben er orðinn forsætisráðherra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“