fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Vilja kanna launakjör, útvistun og starfsmannaleigur Reykjavíkurborgar: „Þetta er ein af eituráhrifum nýfrjálshyggjunnar, eitt af tækjum hinna ríku til að brjóta niður samfélagið“

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 19. júní 2018 19:00

Daníel Örn Arnarsson og Sanna Magdalena Mörtudóttir. Mynd: Alda Lóa Leifsdóttir.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í dag lagði Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, fram tillögu í nýkjörinni borgarstjórn Reykjavíkur um að könnun verði gerð á umfangi útvistunar, verktakasamninga við launafólk og starfsmannaleiga í stofnunum og fyrirtækjum á vegum Reykjavíkurborgar og félögum sem borgin á hlut að. Tilefnið er meðal annars nýleg afhjúpun á kjörum og réttarstöðu starfsfólks í Hörpu og hvernig stjórn og stjórnendur opinbers félags töldu það hlutverk sitt að berja niður kjör og réttindi verst launaða starfsfólksins, að því er segir í tilkynningu.
Í greinargerð tillögunnar segir að mótmæli lægst launaða fólksins í Hörpu, tónlistar- og ráðstefnuhúsi, hafi dregið athygli borgarbúa að því hversu algeng verktakavinna og önnur útvistun var í störfum sem áður voru unnin af fólki í fastri vinnu og með full réttindi launafólks. Þetta gefur tilefni til víðtækrar könnunar á umfangi slíkra verktakasamninga og annari útvistun á vegum borgarinnar og stofnunum og fyrirtækjum sem hún tengist. Undanfarin ár hafa einkafyrirtæki nýtt sér starfsmannaleigur og verktakasamninga til að skerða rétt launafólks, færa það frá þeim réttindum sem hinn hefðbundni vinnumarkaður tryggir og út í óvissu tímabundinna verktakasamninga. Þessi tilhögun hefur líka brotið upp starfsmannahópa, sem skiptast nú orðið oft á tíðum í betur launað fólk sem er fastráðið og lægra launað fólk sem ekki er ráðið til þess fyrirtækis eða stofnunar þar sem það sinnir verkefnum heldur vinnur ýmist hjá sjálfu sér eða hjá óskyldu fyrirtæki. Þetta hefur haft mikil áhrif á vinnustaði, búið þar til stéttaskiptingu og gert verst launaða fólkið enn verr sett á vinnustað en það áður var. Lagt er til að gerð verði könnun á öllum vinnustöðum á vegum borgarinnar og umfang verktöku, starfsmannaleiga og útvistunar mæld og starfsfólki gefin kostur á að tjá sig um þróun undanfarinna ára.
„Útvistun og starfsmannaleigur hafa stórskaðað réttindi starfsfólks, ekki bara hérlendis heldur út um allan heim. Þetta er ein af eituráhrifum nýfrjálshyggjunnar, eitt af tækjum hinna ríku til að brjóta niður samfélagið“ segir Daníel Örn Arnarsson, varaborgarfulltrúi sósíalista og stjórnarmaður í Eflingu, stéttarfélagi. „Við þurfum að glíma við þessa óáran hjá einkafyrirtækjum, en afhjúpunin í Hörpu sýndi að þetta mein nær langt inn í opinbera geirann. Víða er búið að höggva frá fólkið sem þrífur eða sér um matinn út úr starfsmannahópnum, það er ekki lengur borgarstarfsmenn heldur vinnur hjá óskyldu fyrirtæki út í bæ. Og oft vinnur það hjá Dögum, fyrirtæki sem er í eigu fjölskyldu fjármálaráðherrans. Þetta er að sögn gert til að spara hjá hinu opinbera en sparnaður er fyrst og fremst fólginn í því að fá utanaðkomandi félag til að berja niður kjör og réttindi lægst launaða fólksins. Hið opinbera er í raun og sann að greiða eigendum þessara félaga, meðal annars eins í eigu fjölskyldu fjármálaráðherrans, fyrir að berja niður kjör verst setta launafólksins. Þetta er ekki bara spilling samfélagsins, þetta er úrkynjun.“
Sanna og Daníel segja að þessi breyting á vinnumarkaðnum hafi verið keyrð áfram án þess að afleiðingarnar lægju fyrir. „Og það er sammerkt með öllum breytingum nýfrjálshyggjunnar,“ segir Sanna. „Þær voru keyrðar í gegn án þess að afleiðingarnar væru skoðaðar. Þetta átti til dæmis við um um niðurbrot tekjuöflunarkerfis ríkis og borgar. Skattar og gjöld voru felld niður á hinum ríku án þess að óhjákvæmilegar afleiðingar þess væru ræddar; það er hækkun skatta á launafólk, niðurskurður opinberrar þjónustu og aukin gjaldtaka innan velferðar-, skóla- og heilbrigðiskerfisins. Útvistun verkefna frá hinu opinbera er sögð spara fé en fátt bendir til þess að svo sé. Það sem gerist er að vinnuálag á verst launaða fólkið eykst, kjör þess versna, fólkið býr við meira álag og verður slitið fyrr. Ætlaður sparnaður er því keyrður á baki hinna verst settu. Og hið opinbera fær ekki ávinninginn heldur eigendur fyrirtækja sem taka yfir verkefni sem áður var sinnt af borgarstarfsmönnum.“
„Nýleg könnun breska ríkisendurskoðunarinnar á hundruðum verkefna sem höfðu verið útvistað frá hinum opinbera sýndi að svo til ekkert þeirra hafi skilað skattgreiðendum ávinningi, sum sýndu engan ávinning fyrir almenning en lang flest fólu í sér aukinn kostnað fyrir skattgreiðendur og notendur og skert kjör starfsfólksins. Þetta ætti ekki að koma neinum á óvart,“ segir Daníel. „Nýfrjálshyggjan er vond stefna. Það er vond stefna sem setur hagsmuni hinna ríku ávallt í fyrsta sæti. Það ætti að vera flestum augljóst.“
Sanna segir að því miður sé erfitt að átta sig á umfangi útvistunar, gerviverktöku eða starfsmannaleigu hjá Reykjavíkurborg. „Þess vegna viljum við kanna þetta,“ segir Sanna. „Það er ekki hægt að bregðast við samfélagsbreytingum nema vita hvert umfang og eðli þeirra er. Og þess vegna er ekki nóg að sjá tölur á blaði. Við viljum heyra í fólkinu sem hefur upplifað þessar breytingar. Hvaða áhrif hefur það á stöðu þess að vera flutt út úr starfsmannahópnum og yfir í óskylt félag? Hver er breytingin á stöðu og kjörum ræstingarfólks í dag og frá þeim tíma að það var ráðið beint af viðkomandi stofnun? Hefur stéttskipting aukist á vinnustöðum? Má greina vaxandi fjarlægð stjórnenda frá starfsmönnum, eru þeir hrokafyllri og á starfsfólkið erfiðara með að fá áheyrn eða hafa áhrif? Allt eru þetta spurningar sem nauðsynlegt er að fá svör við svo við getum mótað nýja starfsmannastefnu.“
„Það er alla vega ljóst að við erum komin út í ógöngur,“ segir Daníel. „Það er alvarlegt vandamál að eigendur einkafyrirtækja beiti svona starfsmannastefnu gegn sínu launafólki en það er fullkomlega fráleitt að Reykjavíkurborg, félag okkar borgarbúa, api þetta eftir. Eru það hagsmunir borgarbúa að staða hinna verst settu á vinnumarkaði verði gerð enn veikar? Ég kannast ekki við þá kröfu eða um þetta hafi nokkru sinni verið kosið og ég efast um að fyrir þessu sé nokkurt fylgi meðal borgarbúa. Reykvíkingar vilja sanngjarnt og réttlátt samfélag. Alla vega þeir Reykvíkingar sem ég hitti og tala við.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt