fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Mikil aukning í tengiflugi og tengimöguleikum á Keflavíkurflugvelli samkvæmt skýrslu

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 19. júní 2018 16:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í nýrri skýrslu um tengimöguleika flugvalla, sem ACI (Airports Council International – Alþjóðasamtökum flugvalla) sendu frá sér í dag, er Keflavíkurflugvöllur meðal þeirra flugvalla þar sem mest aukning hefur orðið í tengimöguleikum frá árinu 2008. Skýrsla ACI er gefin út í tengslum við ársþing samtakanna sem hófst í Brussel í dag, segir í tilkynningu frá Isavia.

Skýrslan byggir á tölfræði og greiningum frá SEO Amsterdam Economics í Hollandi. Umfang og gæði tenginganna var metið á grundvelli þriggja mælikvarða:

  • Beinum tengingum (Direct Connectivity): Fjöldi beinna flugtenginga í boði á flugvelli.
  • Óbeinum tengingum (Indirect Connectivity): Þá er mælt á hversu marga staði er hægt að fljúga frá beinum áfangastöðum.
  • Tengimöguleikar safnvallar (Hub Connectivity): Helsti mælikvarðinn á safnflugvelli (e. hub) – metinn er fjöldi tengifluga sem hægt er að tryggja greiðan aðgang að á viðkomandi flugvelli. Tíminn sem tekur að ná tengiflugi er sérstaklega metinn.

Það er mat ACI í skýrslunni að Keflavíkurflugvöllur sé orðinn mikilvægur þátttakandi á alþjóðavísu þegar kemur að tengingum þvert yfir Atlantshafið og möguleikunum fyrir miðstöð flugs milli heimsálfa.

ACI flokkar flugvelli eftir stærð og Keflavíkurflugvöllur í hópi með flugvöllum með 5-10 milljónir farþega á ársgrundvelli. Á síðustu fimm árum hefur beinum tengingum fjölgað um 132,1% og trónir Keflavíkurflugvöllur því á toppnum í þessum flokki. Ef horft er á síðasta áratug hefur aukningin verið tæp 270% og þar er Keflavíkurflugvöllur einnig á toppnum í sínum flokki.

Þá kemur fram í skýrslu ACI að tengimöguleikar Keflavíkurflugvallar sem safnvallar (e. hub) hafi aukist um 1541% síðan 2008.

Á undanförnum árum hefur Isavia markvisst unnið að því að efla Keflavíkurflugvöll sem tengiflugvöll (e. hub) í samvinnu við þau flugfélög sem lenda á vellinum. Í dag eru áfangastaðir frá Keflavíkurflugvelli 101 þar af heilsársáfangastaðir 46. Fyrir fimm árum voru áfangastaðirnir 54, þar af 18 árið um kring. Í sumar fljúga 28 flugfélög til og frá Keflavíkurflugvelli og þar af 12 allt árið. Árið 2010 voru heilsársflugfélögin þrjú.

Tengiflugvellir hafa, eins og komið hefur fram í innlendum og erlendum greiningum, geysilega jákvæð áhrif á samfélag sitt bæði hvað varðar efnahagsleg áhrif þar sem greiðari leið opnast fyrir fyrirtæki að flytja vörur á nýja erlenda markaði. Þá eykst úrval áfangastaða fyrir almenning. Fram kemur í skýrslu sem ráðgjafafyrirtækið Intervistas vann fyrir ACI Europe, hefur fjölgun flugtenginga jákvæð áhrif á þjóðarframleiðslu. Samkvæmt skýrslunni eykst landsframleiðsla um 0,5% þegar flugtengingar aukast um 10%.

 Björn Óli Hauksson, forstjóri Isavia, er ánægður með niðurstöðuna:

„Ég vil þakka starfsfólki Keflavíkurflugvallar sem og starfsmönnum Isavia í heild fyrir frábært starf í krefjandi umhverfi síðastliðin ár. Það góða starf sem hefur verið unnið til að koma okkur á þennan stað hefur svo sannarlega skilað sér í auknum tengimöguleikum og opnað nýjar gáttir út í heiminn fyrir almenning og fyrirtæki á Íslandi. Mikilvægt er að uppbygging Keflavíkurflugvallar geti haldið áfram þannig að enn fleiri tækifæri til tenginga verið nýtt á komandi árum.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus