fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Stúdentar á fullveldistímanum

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 18. júní 2018 19:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Vorið 1918 brautskráðust 24 karlar og tvær konur með stúdentspróf á Íslandi eða 1,6% af fjölda tvítugra landsmanna. Tæpum hundrað árum síðar eða árið 2016 var hlutfallið 73,7% en það ár brautskráðust 1.935 konur á móti 1.486 körlum. Þetta kemur fram á vef Hagstofunnar.

Í tilefni aldarafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands birtir Hagstofan fréttir á árinu með sögulegu efni sem tengist fullveldistímanum. Hagstofan opnaði vef með sögulegum hagtölum 1. desember 2017 en þar er hægt að finna samfelldar tímaraðir í nokkrum efnisflokkum eins langt aftur og heimildir leyfa.

 

Hærra hlutfall kvenstúdenta frá 1978
Skólaárið 1917–1918 voru karlar 92% brautskráðra stúdenta. Skólaárið 1974–1975 var hlutfall kynjanna orðið nokkuð jafnt en varð síðan hærra hjá konum 1977–1978. Allar götur síðan hafa fleiri konur verið brautskráðar en karlar. Skólaárið 2015–2016 voru 57% nýstúdenta konur og 43% karlar.

Mikil fjölgun framhaldsskóla á síðasta fjórðungi 20. aldar
Fram til vorsins 1928 var Menntaskólinn í Reykjavík eini skólinn hér á landi sem brautskráði stúdenta. Framhaldsskólum fjölgaði ekki að ráði fyrr en á áttunda og níunda áratug síðustu aldar. Frá árinu 1974 til ársins 1984 tvöfaldaðist fjöldi framhaldsskóla á Íslandi. Árið 2016 voru alls 34 skólar sem brautskráðu stúdenta. Árið 1918 var einn framhaldsskóli á hverja 100.000 íbúa en árið 2016 voru þeir tíu.


© Ljósmyndasafn Reykjavíkur

https://sogulegar.hagstofa.is — sérvefur

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Pétur Einarsson látinn
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja

Björn Jón skrifar: Ótrúlegur árangur íslenskra tæknifyrirtækja
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að

Segja tillögu Einars fela í sér „afarkjör“ og hafa verið laumað að
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki