fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Kynnti mannréttindastefnu Reykjavíkurborgar á Spáni

Ritstjórn Eyjunnar
Laugardaginn 16. júní 2018 16:21

Íslensku fulltrúarnir á ráðstefnunni; f.v. Halldóra Gunnarsdóttir, Halla Sigríður Steinólfsdóttir, Anna Guðrún Björnsdóttir og Aldís Hafsteinsdóttir

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samtök evrópskra sveitarfélagasamtaka, CEMR (Council of European Municipalities and Regions) heldur fjórða hvert ár ráðstefnu um kynjajafnrétti, mannréttindamál og samfélagslega þátttöku allra. Ráðstefnan fór nú fram í Bilbao á Spáni 11. til 13. júní sl. Þátttakendur voru um 500 talsins, aðallega starfsmenn sveitarfélaga og svæða í Evrópu, kjörnir fulltrúar og fulltrúar frjálsra félagasamtaka.

Framlag Íslands var kynning Halldóru Gunnarsdóttur, jafnréttissérfræðings Reykjavíkurborgar, á mannréttindastefnu borgarinnar, en á ráðstefnunni var í fjölmörgum málstofum rætt um hvernig vinna megi að kynjajafnrétti í evrópskum sveitarfélögum og svæðum, tryggja stöðu og þátttöku minnihlutahópa og virkni íbúa. Jafnframt voru fyrirmyndarverkefni sveitarfélaga kynnt og skipst var á skoðunum og reynslu, samkvæmt heimasíðu Sambands íslenskra sveitarfélaga.

Evrópusáttmáli um jafna stöðu kvenna og karla í sveitarfélögum og svæðum var í brennidepli, ekki síst hvernig gera megi kynjajafnrétti, eins og  sáttmálinn kveður á um, að viðteknum þætti í starfsemi sveitarfélaga. Þýsk, austurrísk og sænsk sveitarfélög eru í fararbroddi hvað það varðar. Alls hafa 1.720 sveitarfélög og svæði í 35 löndum skrifað undir sáttmálann, þar af sex íslensk sveitarfélög.

Í lok ráðstefnunnar var samþykkt sameiginleg yfirlýsing bæjarstjóra, kjörinna fulltrúa á sveitarstjórnarstigi og samtaka þeirra. Minnt er á, að styrkleiki Evrópu felist í þeim fjölbreytileika og margbrotnu sjálfsmynd (multitude expressions of identity) sem mótar samfélögin okkar. Saga Evrópu einkennist af átökum og upplausn og sú þróun hafi knúið fram sameignleg evrópsk gildi sem byggjast á lýðræði, mannréttindum, frelsi og virðingu fyrir lögum og reglum. Eitt mikilvægasta verkefni evrópskra sveitarstjórnarmanna sé að tryggja, að þessi samfélagslegu gildi verði ávallt í heiðri höfð.

Kallað er eftir réttlátari skiptingu valda og fjármagns, að dregið verði úr félagslegum ójöfnuði og að íbúum verði gert kleift að taka þátt á jafnræðisgrundvelli í stefnumótun sveitarfélaga og svæða sem miðar að uppbyggingu réttlátara samfélags fyrir alla.  Bent er í þessu sambandi á, að margt hafi áunnist með alþjóðlegri og evrópskri samvinnu og aðgerðum CEMR og aðildarsamtaka þeirra. Enn sé félagslegur ójöfnuður þó staðreynd og það kalli á djarfar aðgerðir.

Í yfirlýsingunni er einnig kallað eftir langtímastefnumótun og aukinni þekkingaruppbyggingu og samvinnu, s.s. á milli stjórnsýslustiga og við frjáls félagasamtök, svo herða megi baráttuna gegn hvers konar mismunun. Framkvæmdastjórn Evrópusambandsins er hvött til að móta aðgerðaráætlun um jafnrétti kynjanna, svo samstilla megi með því móti aðgerðir aðildarríkja og stofnana ESB í jafnréttismálum. Þá er einnig hvatt til samstilltra aðgerða vegna heimsmarkmiða Sameinuðu þjóðanna um kynjajafnrétti, fjölbreytni og samfélagslega þátttöku allra.

Íslensku fulltrúarnir á ráðstefnunni voru þær Halla Sigríður Steinólfsdóttir, varaformaður sambandsins og Aldís Hafsteinsdóttir, stjórnarmaður, en þær eru jafnframt fulltrúar sambandsins í stjórnarnefnd CEMR og tóku því einnig þátt í fundi hennar sem haldinn var samhliða ráðstefnunni. Anna Guðrún Björnsdóttir, sviðsstjóri þróunar- og alþjóðasviðs sambandsins, sat einnig fundinn ásamt ráðstefnunni.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 2 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 2 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands

Ásdís Rán segist hafa verið óskipaður sendiherra Íslands
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli

Guðjón Auðunsson: Skuldsetning fasteignafélaga – þetta er eins og að snúa herskipi á andapolli
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?

Óttar Guðmundsson skrifar: Rétthugsun?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?

Sandkorn: Hversu margar undirskriftir teljast nægjanlega margar undirskriftir?