fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Ný byggðaáætlun samþykkt á Alþingi

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 15. júní 2018 08:32

Mynd-Hugi Ólafsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þingsályktunartillaga um stefnumótandi byggðaáætlun fyrir árin 2018 til 2024 var samþykkt á Alþingi 11. júní síðastliðinn með öllum greiddum atkvæðum. Áætlunin lýsir stefnu ríkisins í byggðamálum og er ætlað að stuðla að jákvæðri þróun byggða um land allt og bæta skilyrði til búsetu.

Meginmarkmið byggðaáætlunar er að jafna tækifæri allra landsmanna til atvinnu og þjónustu, jafna lífskjör og stuðla að sjálfbærri þróun byggðarlaga um land allt. Sérstök áhersla er lögð á svæði sem búa við langvarandi fólksfækkun, atvinnuleysi og einhæft atvinnulíf.

Margvíslegar áherslur á sviði byggðamála eru tíundaðar í áætluninni sem ýmist leiða til beinna aðgerða eða til samþættingar við aðgerðir í öðrum opinberum áætlunum til að framangreindum markmiðum verði náð. Alls inniheldur áætlunin 54 aðgerðir og verða 30 þeirra fjármagnaðar af byggðalið fjárlaga, samtals að upphæð 3,5 milljarðar á tímabilinu.

Fyrir liggur að kostnaður við áætlunina verður umtalsvert meiri en það fjármagn sem kemur af byggðalið fjárlaga. Með samþættingu við aðrar opinberar áætlanir verður hægt að fjármagna aðgerðir, ýmist af fjárheimild viðkomandi málaflokks eingöngu eða með samfjármögnun málaflokksins og byggðaliðar. Þá eru nokkrar aðgerðir þar sem ekki er gert ráð fyrir verulegum kostnaði.

Byggðaáætlun byggist á víðtæku og opnu samráðsferli. Samkvæmt lögum nr. 69/2015 um byggðaáætlun og sóknaráætlanir vann Byggðastofnun áætlunina í umboði ráðherra í samvinnu við stýrihóp Stjórnarráðsins um byggðamál. Formleg vinna hófst í mars 2016. Á vinnslutímabilinu hélt Byggðastofnun samráðsfundi með öllum ráðuneytum, með samráðsvettvöngum í sjö landshlutum og fleiri aðilum. Á vef Byggðastofnunar voru öll gögn samráðsins aðgengileg og þar var haldið utan um tillögur, ábendingar og athugasemdir sem bárust í samráðsferlinu. Áður en þingsályktunin var lögð fyrir Alþingi var hún sett til umsagnar í opna samráðsgátt stjórnvalda. Fjöldi umsagna barst og var tekið tillit til þeirra eftir því sem kostur var.

Með samþykkt byggðaáætlunar liggur vilji Alþingis í byggðamálum fyrir. Það verður meðal forgangsverkefna samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytisins að tryggja skilvirka og árangursríka framkvæmd áætlunarinnar.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“

Trúnaði aflétt af leynilegu minnisblaði um meint spillingarmál – „Hlýtur að teljast vafasamt“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?

Orðið á götunni: Verður spútnikframbjóðandinn himnasending kosninganna?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna

Þorsteinn Pálsson skrifar: Notum tímann núna