fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Elísabet kosin forseti stúdentaráðs Aurora

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 15. júní 2018 19:15

Elísabet Brynjarsdóttir, formaður Stúdentaráðs Háskóla Íslands

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Elísabet Brynjarsdóttir, forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands, hefur verið kosin forseti Stúdentaráðs Aurora, sem er samstarfsnet níu virtra evrópskra háskóla sem eiga það sameiginlegt að leggja áherslu á hágæða rannsóknir, samfélagslega ábyrgð og að gera samfélögum betur kleift að takast á við áskoranir samtímans, samkvæmt tilkynningu.

Háskólar í Aurora eiga það einnig sameiginlegt að vera mjög öflugir í rannsóknum, samkvæmt mati Times Higher Education University Ranking (THE), sem birtist meðal annars í miklum áhrifum rannsókna sem stundaðar eru innan skólanna. Matslisti THE er einn sá virtasti í heimi á þessu sviði.

Sem forseti mun Elísabet leiða stúdentaráð Aurora og hafa yfirumsjón með starfi þess frá degi til dags. Samanlagður fjöldi stúdenta innan netsins er um 230.000, og sem forseti er Elísabet í forsvari fyrir þennan stóra hóp stúdenta. Líklega hefur enginn íslenskur stúdentaleiðtogi leitt áður jafnstóran hóp stúdenta í alþjóðlegu umhverfi.

„Verkefni sem eru meðal annars á borði mínu í augnablikinu er að skipa fulltrúa stúdenta í vinnuhópa innan Aurora sem snúa til dæmis að alþjóðamálum, jafnréttismálum og sjálfbærni, halda áfram með vinnu við undirbúning alþjóðlegs íþróttamóts Aurora stúdenta, styrkja alþjóðlegt nám og námsmöguleika fyrir stúdenta innan samstarfsnetsins og undirbúa og stýra fundum stúdenta, bæði í gegnum netið og á ráðstefnum,“

segir Elísabet um þetta nýja hlutverk sitt.

Styrkir alþjóðlega stöðu Háskóla Íslands

„Samstarfsnetið skapar mikilvægan vettvang þar sem háskólar geta bæði litið út fyrir sinn ramma og séð hvað aðrir eru að vinna að og gera vel sem og deilt góðum starfsháttum. Þannig er hægt að tileinka sér nýja og framsæknari starfshætti á auðveldari máta og ekki þarf alltaf að finna upp hjólið í hvert sinn. Sömuleiðis styrkir þetta alþjóðlega stöðu Háskóla Íslands þar sem við fáum meira vægi í alþjóðlegri umræðu um menntamál og skapar netið tækifæri, bæði fyrir starfsfólk skólans sem og stúdenta, sem annars væru ekki fyrir hendi,“

segir Elísabet um samstarfsnetið.

Hún segir að stúdentar innan Aurora haldi bæði sjálfstæða fundi þar sem stúdentar deili hugmyndum og verkefnum hagsmunabaráttunnar innan háskólanna og þeir taki einnig þátt í nær allri vinnu sem eigi sér stað innan netsins.

„Forseti stúdentaráðs Aurora á sæti á stjórnarfundum Aurora og leitað er til hans með flest öll verkefni sem eru í gangi í hvert sinn innan samstarfsnetsins. Með því að taka við forsetastöðunni í þessu neti felst gríðarlegt tækifæri, bæði fyrir stúdentabaráttuna á Íslandi þar sem forseti er í lykilstöðu varðandi öll þau alþjóðamál sem Aurora tekur fyrir í hvert sinn og hægt er að yfirfæra margt yfir á hagsmunabaráttu okkar innan Stúdentaráðs þar sem ég sit einnig sem forseti, sem og getur forseti stúdenta Aurora lagt fram nýjar áherslur innan samstarfsnetsins.“

 

Bar sigurorð af sitjandi forseta 

Kosningar í stöðu forseta stúdentaráðs Aurora eru haldnar árlega þar sem allir fulltrúar stúdenta innan netsins geta boðið sig fram.

„Kosningarnar fóru fram á ráðstefnu Aurora í byrjun maí í Essen í Þýskalandi þar sem ég bauð mig fram gegn þáverandi forseta samtakanna. Haldin er leynileg kosning meðal allra fulltrúa stúdenta og fór svo að ég fékk meirihluta atkvæða. Ég fékk tækifæri til að halda framboðsræðu þar sem ég lagði áherslu á að tekið yrði samtal um geðheilbrigðismál innan netsins ásamt stöðu flóttafólks. Þetta virtist tala til fulltrúa stúdenta þar sem það fór þannig að ég verð starfandi forseti stúdenta í Aurora næsta árið.“

Háskólar í Auroa eru auk Háskóla Íslands, Grenoble-Alpes háskóli (Frakklandi), Háskólinn í Aberdeen (Skotlandi), Háskólinn í Antwerpen (Belgíu), Háskólinn í Björgvin (Noregi), Háskólinn í Duisburg-Essen (Þýskalandi), East Anglia háskóli (Englandi), Gautaborgarháskóli (Svíþjóð) og Vrije-háskóli í Amsterdam (Hollandi).

 

Hver er Elísabet Brynjarsdóttir?

Elísabet Brynjarsdóttir er fædd og uppalin í Garðabæ og er 25 ára gömul. Hún er hjúkrunarfræðingur og hyggst halda áfram í framhaldsnám í geðhjúkrun eða alþjóðasamskiptum eftir starfsár sitt hjá Stúdentaráði og Aurora.  Hún er eins og áður sagði forseti Stúdentaráðs Háskóla Íslands og var oddviti Röskvu, samtaka félagshyggjufólks við Háskóla Íslands. Elísabet brautskráðist sem hjúkrunarfræðingur frá Háskóla Íslands í júní fyrir réttu ári og starfaði sem teymisstjóri hjá heimahjúkrun Heilsugæslu höfuðborgarsvæðisins þar til hún tók við stjórnartaumum í Stúdentaráði.  Elísabet var formaður Hugrúnar – geðfræðslufélags háskólanema, sem hún tók þátt í að stofna árið 2016 ásamt nemendum í hjúkrunarfræði, læknisfræði og sálfræði við Háskóla Íslands.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar

Orðið á götunni: Katrín vildi Geir Haarde í fangelsi – hefur ekki beðist afsökunar
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið

Katrín með forskot á Baldur – Halla Hrund sækir í sig veðrið
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“

Kúrekar og jakkafatalakkar Alþingis – „Fólkið í fínu fötunum, með fínu skoðanirnar og fínu brosin“
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt