Það er gagnrýnt að leyfðar skuli hátt í hótelíbúðir í risastóru íbúðarhúsi sem er að rísa inn við Borgartún. Þetta er eðlilegt, á þessu svæði væri miklu nær að fjölga eins og hægt er íbúum sem hafa fasta búsetu. Það hefur verið hringlandi með þetta, fyrst var synjað um leyfi, svo en svo breyttu borgaryfirvöld þeirri ákvörðun og hafa fundið einhverja leið til að verja það.
En gæti hugsast að þetta sé misráðið hjá eigendum hússins? Að það væri snjallara að setja íbúðirnar í sölu eða leigu? Að þannig væru þeir meira í takt við þróun húsnæðismarkaðsins.
Í borginni heyrir maður talað um mikinn samdrátt í Airbnb-gistingu. Að húsnæði sem var næstum fullt í fyrra og hittifyrra standi nú meira og minna tómt. Bókanirnar séu afar stopular. Það sé í raun lítið upp úr þessu að hafa að teknu tilliti til kostnaðar við þrif og opinber gjöld.
Og það eru enn að bætast við íbúðir sem ætlunin er að leigja til ferðamanna. Það kallast offramboð. Færri hagnast, fleiri tapa. Máski er þetta ekki svo góður bisness lengur.
Á sama tíma er tilkynnt að sýslumaðurinn í Reykjavík fái að setja upp sveit manna sem hefur eftirlit með Airbnb. Það er svosem skiljanlegt, en kannski dálítið seint í rassinn gripið miðað við stöðuna í ferðamannagistingunni.