fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Meirihlutinn færir Sjálfstæðisflokknum aukamann í borgarráði

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 14. júní 2018 17:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sanna Magdalena Mörtudóttir, borgarfulltrúi sósíalista, mun leggja það til á fyrsta fundi nýrrar borgarstjórnar að samþykktum borgarstjórnar verði breytt aftur svo þeir flokkar, sem ekki fá kjörna fulltrúa í ráð og nefndir borgarinnar, fái að skipta í öll ráð áheyrnarfulltrúa með málfrelsi og tillögurétt. Þetta kemur fram í tilkynningu frá Sósíalistum.
„Ég hef ekki náð að átta mig á hvaða hugsun lá að baki breytingunum í apríl þegar áheyrnarfulltrúar voru felldir út, að einhverju leyti spilaði sparnaðarsjónarmið inn í og mögulega ótti við að fundir yrðu of fjölmennir. En mér finnst þessi rök veigalítil þegar aðgengi lýðræðislega kjörna borgarfulltrúa að stjórnkerfi borgarinnar er skert með svona afgerandi hætti.“
segir Sanna.
Sanna segir að allir minnihlutaflokkarnir styðji þessa tillögu, þar af leiðandi 11 af 23 borgarfulltrúum.
„Það er því nóg að annar af borgarfulltrúum Pírata styðji tillöguna. Píratar hafa mikið lagt upp úr gagnsæi og lýðræðislegum vinnubrögðum í sinni stefnu svo ég er nokkuð vongóð um að fá stuðning þaðan,“
segir Sanna.
Auk þessarar tillögu vinna sósíalistar í borginni að því að fá hnekkt túlkun skrifstofu borgarstjórnar á sveitastjórnarlögum þess efnis að ef sósíalistar, Miðflokkur og Flokkur fólksins bjóða fram lista til að koma fulltrúa frá einum af þessum flokkum inn í borgarráð þá fyrirgeri hinir ekki rétti á að skipa áheyrnarfulltrúa þar. Eftir breytingarnar í apríl sitja aðeins eftir áheyrnarfulltrúar í borgarráði og samgöngu- og skipulagsráði, einu ráðunum sem hafa heimild til fullnaðarafgreiðslu einstakra mála. En skrifstofa borgarstjórnar túlkar lögin þannig að flokkar fyrirgeri rétti sínum til að skipa áheyrnarfulltrúa ef þeir styðja kjör fulltrúa annars flokks til setu í ráðunum.
„Þetta er einkar ólýðræðisleg túlkun,“ segir Sanna. „Þar sem forseti og varaforsetar borgarstjórnar hafa ekki verið kjörnir er í dag engin forsætisnefnd að störfum, sem gæti hnikað til þessari túlkun. En það er ljóst að hinir kjörnu fulltrúar verða að stíga inn í þetta mál til að tryggja öllum flokkum réttlátt aðgengi að þessum ráðum.“
Sósíalistar hafa undirbúið kæru til sveitarstjórnarráðuneytisins til að fá túlkun skrifstofu borgarstjórnar breytt. Að sögn Sönnu er ólíklegt að nokkrir flokkar í öðrum sveitastjórnum standi frammi fyrir sama vali og sósíalistar, Miðflokkur og Flokkur fólksins í Reykjavík, að þurfa að velja á milli þess að sækjast eftir einu sæti í borgarráði og samgöngu- og skipulagsráði og fórna með því áheyrnarfulltrúum eða að velja áheyrn handa öllum flokkunum en gefa Sjálfstæðisflokknum eftir atkvæði sitt í ráðunum.
„Aðstæður í Reykjavík eru svo sérstakar vegna fjölda flokka að þessir ágallar lagana í samspili við breyttar samþykktir hafa ekki komið fram fyrr en nú. Þegar það gerist þarf að beita túlkun sem tekur veigameiri atriði fram yfir veigaminni. Og í þessu tilfelli er klárt að það sem er mikilvægast er gagnsæi, virkt lýðræði, jafnræði milli flokka og réttur þeirra kjósenda sem kusu í nýliðnum borgarstjórnarkosningunum,“
segir Sanna.
Að óbreyttu munu 16,8% kjósenda sem kusu sósíalista, Miðflokk og Flokk fólksins ekki fá neinn fulltrúa í borgarráði og samgöngu- og skipulagsráði. Þetta er meira en helmingur þeirra atkvæða sem Sjálfstæðisflokkurinn fékk, en að óbreyttu mun hann fá þrjá fulltrúa í borgarráð og samgöngu- og skipulagsráð.
„Það kostulega er að með því að styðja túlkun skrifstofu borgarstjórnar og bregðast ekki við afleiðingum hennar eru Píratar, Vg, Samfylking og Viðreisn að færa Sjálfstæðisflokknum auka mann í borgarráð og annan í samgöngu- og skipulagsráð“ segir Sanna. „Ég held að kjósendum þessara flokka finnist það skrítin niðurstaða, að þeir séu að styðja aukið vægi Sjálfstæðisflokksins við stjórn borgarinnar.“
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus