Þýska tímaritið Der Spiegel gefur búningum liðanna á HM einkunn í samantekt á vefsíðu sinni. Svissneski búningurinn lendir í þrítugasta og öðru og síðasta sæti, telst semsagt vera sá lakasti, en sá íslenski í næstsíðasta sætinu.
Der Spiegel segir að öllum líki vel við Ísland en klæðnaður liðsins geti ekki verið skýring á því. Rauðu og hvítu punktarnir á öxlunum séu ekki að gera sig. Þeim er líkt við bletti í umfjölluninni.
Þrír flottustu búningarnir samkvæmt þýska blaðinu eru sá enski, sá rússneski, en Perú er með flottasta búninginn segir þarna. Þetta er búningur sem er sagður hafa mikla hefð í Perú, hann sé svipaður þeim sem Perúmenn voru í á Ólympíuleikunum 1936.