fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Hlutur kvenna hefur aldrei verið meiri í sveitarstjórnum

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 14. júní 2018 09:19

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Nærri einn af hverjum tveimur sveitarstjórnarmönnum er kona og hefur hlutur kvenna aldrei verið meiri í sveitarstjórnum en nú eða 47,2% Til samanburðar má nefna að hlutfall kvenna var að sveitarstjórnakosningum afloknum árið 1998 einungis 28,2% og hefur hlutfall þeirra því nánast tvöfaldast á sl. 20 árum.

Þetta kemur fram á vef Sambands íslenskra sveitarfélaga, sem hefur nú lokið við að taka saman upplýsingar frá sveitarfélögum um niðurstöðu síðustu sveitarstjórnakosninga.

Auk þess sem hlutur kvenna hefur aldrei verið meiri, hafa kjörnir sveitarstjórnarmenn aldrei verið færri en nú eða 502 talsins og hefur þeim fækkað um tvo frá síðustu kosningum. Þessa fækkun má rekja til  tveggja sameininga hjá Sveitarfélaginu Garði og Sandgerðisbæ annars vegar og Breiðdalshrepps og Fjarðarbyggðar hins vegar. Á sama tíma fjölgaði borgarfulltrúum í Reykjavík úr 15 í 23 og má því segja að sú breyting hafi vegið upp á móti enn frekari fækkun í röðum sveitarstjórnarmanna.

Hvað endurnýjun sveitarstjórna snertir, þ.e. fjölda þeirra fulltrúa sem áttu ekki sæti í sveitarstjórn sem aðalmenn á síðasta kjörtímabili, þá eru þeir 293 talsins eða 58,4%. Samsvarandi hlutfall var 54,4% að þar síðustu kosningum loknum árið 2014 og 57,4% árið 2010 í upphafi kjörtímabilsins þar áður.

Þegar endurnýjun fulltrúa er annars vegar, geta aðrar skýringar átt við, en að viðkomandi fulltrúi sé nýr á vettvangi sveitarstjórnarmála. Í einhverjum tilvikum kann aðalmaður að hafa setið áður sem sem varamaður í sveitarstjórninni eða sem aðalmaður á öðru kjörtímabili og í enn öðrum tilvikum kann fulltrúi að hafa fært sig um set á milli sveitarfélaga, eftir setu annars staðar í sveitarstjórn. „Nýir“ sveitarstjórnarmenn geta þess vegna haft reynslu af störfum í sveitarstjórnarmálum í einhverjum tilvikum, enda þótt tala „nýrra“ sveitarstjórnarmanna gefi annað til kynna. Ekki er þó ljóst í hve miklum mæli það er.

Sveitarstjornakosningar-2018

Heimild: Samband íslenskra sveitarfélaga

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt