Búið er að telja atkvæðin í Árneshreppi. Morgunblaðið greinir frá.
Guðlaugur Ágústsson, Bjarnheiður Fossdal og Arinbjörn Bernharðsson fengu 24 atkvæði og Eva Sigurbjörnsdóttir, oddviti, og Björn Torfason fengu 23 atkvæði hvort. Þessi fimm munu því skipa hreppsnefnd næstu fjögur árin.
Öll eru þau hlynnt Hvalárvirkjun.
Eva, Guðlaugur og Bjarnheiður sátu einnig í hreppsnefnd síðasta kjörtímabils.
Varamenn eru: Úlfar Eyjólfsson, Magnús Karl Pétursson, Sigurstein Sveinbjörnsson, Elín Agla Brie og Sigrún Ósk Ingólfsdóttir.
Kosningaþátttaka var 93,48%, alls þrír kusu ekki.