Aðalstjórnir HK og Breiðabliks vilja koma eftirfarandi á framfæri í tengslum við færslu í dálknum Orðið á götunni sem birtist í dag.
Stjórnum félaganna finnst það afar miður, að daginn fyrir kjördag, skuli upptöku af ræðu bæjarstjórans í Kópavogi á herrakvöldi knattspyrnudeildar Breiðabliks vera dreift á fréttamiðli. Það er hefð fyrir því að á herrakvöldum félaganna sé gert grín af mönnum og málefnum. Það er okkar upplifun að samskipti bæjarstjórans bæði við Breiðablik, HK og önnur íþróttafélög í Kópavogi hafa einkennst af velvilja og virðingu. Það ríkir heilbrigð samkeppni á íþróttavellinum á milli Breiðabliks og HK sem endurspeglast yfirleitt í meinlausum ríg milli stuðningsmanna eins og vani er milli nágrannafélaga. Samskipti Breiðbliks og HK eru farsæl og hafa verið það um langt skeið, sem og samstarfið við bæjaryfirvöld í Kópavogi. Okkur þykir miður hvernig félögin hafa verið dreginn inní umræðuna í pólitískum tilgangi daginn fyrir kjördag en umrætt herrakvöld var haldið þann 2. mars s.l.
F.h. Aðalstjórnar Breiðabliks og HK
Sveinn Gíslason formaður Breiðabliks
Sigurjón Sigurðsson formaður HK