fbpx
Miðvikudagur 24.apríl 2024
Eyjan

Samfylking enn stærst – Sjálfstæðisflokkur sækir á

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. maí 2018 08:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt nýrri könnun Fréttablaðsins á fylgi framboðanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar á morgun, heldur meirihlutinn velli, með 13 af 23 fulltrúum. Samfylking er stærst flokka, en Sjálfstæðisflokkurinn bætir aðeins við sig frá síðustu könnun. Alls sjö flokkar ná inn manni í borgarstjórn.

 

Samfylking – 32,1 % = 9 fulltrúar

Sjálfstæðisflokkurinn – 26,3% = 7 fulltrúar

Píratar – 10,3% = 2 fulltrúar

Vinstri grænir – 7,5% = 2 fulltrúar

Viðreisn – 6,2 % = 1 fulltrúi

Miðflokkurinn – 5,3% = 1 fulltrúi

Framsóknarflokkurinn – 3,6% = 1 fulltrúi

 

Þeir flokkar sem ná ekki inn manni í borgarstjórn samkvæmt könnuninni:

Flokkur fólksins – 3,1 %

Sósíalistaflokkur Íslands – 2,3%

Kvennahreyfingin 1,9%

Höfuðborgarlistinn – 0,3%

Frelsisflokkurinn – 0,3%

Alþýðufylkingin – 0,1%

 

Ekki er minnst á Karlalistann, Borgina okkar – Reykjavík, eða Íslensku þjóðfylkinguna í könnuninni.

 

Hringt var í 1.987 manns með lögheimili í Reykjavík þar til náðist í 1.500 samkvæmt lagskiptu úrtaki dagana 23. og 24. maí. 

Svarhlutfallið var 75,5 prósent. Þátttakendur voru valdir með slembiúrtaki úr þjóðskrá. Svarendur skiptust jafnt eftir kyni og hlutfallslega eftir aldri. Alls tóku 62,1 prósent þeirra sem náðist í afstöðu til spurningarinnar. Þá voru slétt 10 prósent sem sögðust ekki ætla að kjósa eða ætla að skila auðu, 18,4 prósent sögðust óákveðin og 9,6 prósent vildu ekki svara spurningunni. Rétt er að taka fram að vikmörkin í könnuninni eru á bilinu 0,18 til 2,36 prósent.

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins