fbpx
Föstudagur 26.apríl 2024
Eyjan

Gylfi svarar fyrir sig – Segir Ragnar Þór ljúga að stjórnarmönnum VR

Ritstjórn Eyjunnar
Föstudaginn 25. maí 2018 16:20

Gylfi Arnbjörnsson, fyrrverandi forseti ASÍ

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ, hefur sent frá sér yfirlýsingu vegna vantraustsyfirlýsingar stjórnar VR á Gylfa í gær. Í yfirlýsingunni eru forsendur VR sagðar rangar og er Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, sagður hafa blekkt stjórnarmenn með ósannindum.

Yfirlýsinguna má lesa hér að neðan:

Yfirlýsing og áskorun vegna vantrausts stjórnar VR á forseta ASÍ

Það er alvarlegt þegar stærsta aðildarfélag Alþýðusambands Íslands lýsir yfir vantrausti á forseta samtakanna. Það er enn alvarlegra þegar það er gert á forsendum sem beinlíns eru rangar og stjórnarmenn blekktir af formanni sínum með ósannindum. Það veldur líka vonbrigðum að stjórn VR taki ákvörðun af þessu tagi án nokkurrar sameiginlegrar umræðu heldur með rafrænni atkvæðagreiðslu í gegnum tölvupósta.

Ég hef innan veggja ASÍ alla tíð forðast afskipti af ákvörðunum einstakra aðildarfélaga og virt allar þær lýðræðislegu hefðir og reglur sem þróast hafa í innviðum verkalýðshreyfingarinnar í rúmlega hundrað ára farsælli sögu hennar. Í þessu tilfelli, þegar upplognar sakir eru bornar á mig til að villa stjórnarmönnum VR sýn, er hins vegar óhjákvæmilegt að ég bendi á þá staðlausu stafi sem hann leyfir sér að bera á borð.

Í tölvupósti formannsins til stjórnarmanna sinna sagði m.a.: ,,Nú hefur forseti ASÍ sent tölvupóst á miðstjórn og samninganefnd ASÍ um að hann muni leiða viðræður við stjórnvöld í gegnum þjóðhagsráð án sérstaks umboðs frá félögunum. Ég tel brýnt að við tökum af allan vafa um hvar umboð hans liggur í þessari vegferð. Meðfylgjandi er yfirlýsing stjórnar VR um að samningsumboðið er hjá okkur en ekki forseta ASÍ og hann njóti ekki trausts til að leiða þær viðræður sem framundan eru. Þar sem fyrsti fundur með þjóðhagsráði er á morgun tel ég brýnt að senda þetta með tölvupósti til samþykktar eða synjunar.‘‘

Þetta er veruleg skrumskæling á sannleikanum. Í þeim tölvupósti mínum til miðstjórnar ASÍ sem formaður VR vitnar til sagði ég m.a.: Þar sem ekki hefur verið tekin nein ákvörðun um samstarf landssambanda og stærstu félaga á grundvelli samstarfssamningsins varðandi næstu samningalotu, er ljóst að Samninganefndin hefur ekkert umboð á hendi og þar af leiðandi ekki viðræðunefndin heldur. Samskipti við stjórnvöld eru hins vegar almennt á borði miðstjórnar ASÍ skv. bæði samþykktum ASÍ og þeirri verkaskiptingu sem er milli ASÍ og aðildarfélaganna. Ég mun því mæta á fyrrgreindan fund með forsætisráðherra ásamt framkvæmdastjóra ASÍ og gera grein fyrir niðurstöðum hagdeildar ASÍ á þróun skattkerfisins m.t.t. mismunandi tekjuhópa. Jafnframt mun ég gera grein fyrir ályktunum þinga ASÍ ásamt miðstjórn ASÍ varðandi kröfuna um aukið tekjujöfnunarhlutverk skattkerfisins og mikilvægi þess að efla bæði barnabóta- og húsnæðisbótakerfin en ekki leggja fram neinar beinar tillögur til úrbóta. Efnahags- og skattanefnd ASÍ hefur fengið það verkefni að ræða mismunandi leiðir að þessu markmiði en sú vinna er rétt að hefjast og því ekki til frásagnar. Ég treysti því að um þessa skipan mála geti verið sátt og mun ég gera nánari grein fyrir fundinum á næsta miðstjórnarfundi.‘‘

Mér er fyrirmunað að skilja hvernig hægt er að lesa út úr þessum texta að ég hafi ákveðið að fara gegn ákvörðun miðstjórnar ASÍ, sem að minni tillögu samþykkti fyrir nokkru síðan að setjast ekki í Þjóðhagsráð vegna þess að svigrúmið sem stjórnvöld vildu skenkja velferðar- og skattamálum var alltof lítið. Auðvitað myndi mér aldrei detta í hug að ákveða upp á eigin spýtur, þvert á ákvörðun miðstjórnar ASÍ, að taka þar sæti. Og auðvitað veit formaður VR betur þegar hann fullyrðir hið gagnstæða og ruglar þar að auki saman, og væntanlega viljandi, annars vegar upplýsingaskyldu ASÍ gagnvart stjórnvöldum og hins vegar einhverskonar „samningsumboði“. Rétt er að ítreka að ASÍ, og ennþá síður forseti þess, hefur ekki umboð til að semja um kjör fyrir hönd einstakra aðildarfélaga. Það gera þau sjálf. Heimild ASÍ til viðræðna og samninga við stjórnvöld um aðra þætti kjaramála er alfarið í höndum miðstjórnar samtakanna en ekki forseta þeirra.

Um þetta er öllum miðstjórnarmönnum vafalaust kunnugt. Ragnar Þór Ingólfsson er einn þeirra. Leyfi ég mér að skora á hann að benda á hvar í tölvupósti mínum til miðstjórnar hann finnur þeim fullyrðingum sínum stað að ég hyggist „leiða viðræður við stjórnvöld í gegnum Þjóðhagsráð án sérstaks umboðs frá félögunum“. Leyfi ég mér einnig að hvetja fjölmiðla til þess að inna hann eftir þeim rökstuðningi.

Reykjavík 25. maí 2018 Gylfi Arnbjörnsson, forseti ASÍ

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?

Ole Anton Bieltvedt skrifar: Þegar þjóðin hafnaði stjórnmálamanni – Endurtekur sagan sig?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr

Halla Hrund stóreykur fylgi sitt – Mælist með meira fylgi en Jón Gnarr
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?

Orðið á götunni: Verða Bessastaðir stökkpallur inn á Alþingi?
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum

Framsókn baunar á Samfylkinguna sem undirbýr að taka við stjórnartaumunum
Eyjan
Fyrir 1 viku

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt

Ólafur Þ. Harðarson: Kosningarnar nú minna mjög á kosningarnar 1980 – spurningin hvort kjósendur kjósa taktískt
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“

Þrír milljarðar í súginn og þögnin ærandi – „Með öllu óskiljanlegt og ríkisstjórn Íslands til ævarandi skammar“
Eyjan
Fyrir 1 viku

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2

Sigurður Amlín nýr rekstrarstjóri hjá Stöð 2