fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Vill sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 24. maí 2018 17:10

Ingvar Mar Jónsson

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ingvar Mar Jónsson, oddviti Framsóknarflokksins í Reykjavík, sat fyrir svörum í Beinni línu á DV í dag. Meðal þess sem spurt var um var hvort hann vildi sameina sveitarfélögin á höfuðborgarsvæðinu. Sagði Ingvar það skynsamlega leið:

„Mér finnst mjög skynsamlegt að gera það og ég er algerlega tilbúinn til viðræðna í því tilliti. Slík sameining á vel við skipulagsmálin, því þá er hægt að skipuleggja svæðið sem eina heild,“

sagði Ingvar og deildi framtíðarsýn sinni í skipulagsmálum:

„Besta byggingarlandið er á Álftanesi og framtíðarmúsíkin er sú að koma Skerjabraut út í Álftanes. Þar verði blómleg byggð nálægt miðbænum og þegar brúin er komin ertu kominn þangað á 5 mínútum. Til lengri tíma litið heldur þetta svo áfram í áttina að Keflavík, og styttir leiðina þar á milli. Það þarf að koma á hringakstri utan um borgina, í stað þess að fara með alla umferð í gegnum Hafnarfjörð og Garðabæ,“

sagði Ingvar.

Hann tók einnig fram að Framsókn gæti unnið með öllum flokkum:

„Ég verð að segja að ég held að ég geti unnið með öllum flokkum, en það er fyrst og fremst í höndum kjósenda að stilla þessu upp. En við verðum að lesa í tölurnar til að sjá hvað það er sem kjósendur vilja.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum

Inga Sæland herská – Kallar eftir stuðningi á þingpöllunum
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
EyjanFastir pennar
Fyrir 5 dögum

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega

Björn Jón skrifar: Grýlur sem ýla hræðilega
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus

Guðjón Auðunsson: Ef markmiðið er að fækka um eina kaffivél er sameiningin tilgangslaus