Miðað við niðurstöðurnar í könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið í gær, má áætla að Sjálfstæðisflokkurinn vilji helst ekki að ungir kjósendur í Reykjavík taki sér tak og mæti á kjörstað. Kjörsókn hefur verið með minnsta móti í undanförnum sveitastjórnarkosningum og er Reykjavík engin undantekning. Það skrifast að nokkru leyti á aldurshópinn 18-24 ára, sem virðist illfáanlegur á kjörstað.
Fjallað var um tilraunir borgarmeirihlutans á dögunum til að fá fleira ungt fólk í kjörklefann, með því að senda því áminningu í gegnum sms. Slíkt þótti vafasamt, þar sem öll markaðssetning í gegnum sms er bönnuð. Kosningahvatning var í þessu tilfelli ekki skilgreind sem markaðssetning og mun því Reykjavíkurborg senda sms á stóran hóp ungmenna, um að koma og kjósa á laugardaginn.
Það rataði einnig í fréttirnar þegar Reykjavíkurborg ákvað, í aðdraganda kosninga, að byrja á tilraunaverkefni með gatnahreinsun. Nýjungin fólst í því að tilkynna átti íbúum valinna hverfa að slík hreinsun færi fram um daginn í þeirra hverfi, með sms. Með þessu átti að spara pappírs- og dreifingarkostnað auk þess að hlífa umhverfinu.
Þegar þessi verkefni voru sett í samhengi útfrá tímasetningu, sagði Eyþór Arnalds, borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins, að borgin væri „augljóslega notuð sem áróðurstæki í kosningabaráttu Samfylkingarinnar.“
Í ljósi aldursgreiningar á fylgi Sjálfstæðisflokksins í könnun Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið, gæti sms-kjörsóknarátak meirihlutans haft úrslitaáhrif og því er það akkur Sjálfstæðisflokksins að unga fólkið haldi sig heima
Aðeins 16,3% aðspurðra á aldrinum 18-29 ára sögðust ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn, meðan 44% sögðust ætla að kjósa Samfylkinguna.
Svipaða sögu er að segja af fólki á aldrinum 30-44 ára. Þar sögðust 17,6% ætla að kjósa Sjálfstæðisflokkinn en 29,7% Samfylkinguna.
Í aldurshópnum 45-59 ára mælist Sjálfstæðisflokkurinn stærri en Samfylking, með 33.5% móti 26,1% en hinsvegar mælist Samfylking stærri en Sjálfstæðisflokkur meðal þeirra sem eru 60 ára og eldri.