Nú ætla ég ekki að halda því fram að þetta sé byggt á vísindalegum mælingum eða með því að ganga í hús í bænum – en ég hef þá tilfinningu að Airbnb starfsemi í Reykjavík hafi náð hámarki og fari nú dvínandi.
Maður heyrir þetta víða utan að sér. Fólk sem hefur verið að leigja íbúðir á Airbnb er ekki ánægt. Leigutíminn er orðinn of stopull, bókunum hefur fækkað, þær eru í styttri tíma, samkeppnin er svo mikil að verðið lækkar. Svo auðvitað kostnaður við Airbnb, við þrif og þvotta, og, ef farið er að reglum, vill skatturinn fá sitt.
Tími uppgripanna miklu á Airbnb er líklega liðinn. Þróunin á þessu ári gæti orðið sú að nokkur fjöldi íbúða færist úr Airbnb leigu og yfir á hefðbundinn leigumarkað.
Annar fylgifiskur samdráttar í ferðaþjónustu er svo minni þörf á erlendu vinnuafli. Og það þýðir minni eftirspurn eftir tímabundnu húsnæði fyrir útlent verkafólk. Sem aftur hefur áhrif á húsnæðismarkaðinn. Kannski þarf ekki endilega að byggja stór ný hverfi á jaðri borgarinnar?