fbpx
Fimmtudagur 18.apríl 2024
Eyjan

Atvinnuleysi 4,5% í apríl

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 24. maí 2018 10:15

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Samkvæmt vinnumarkaðsrannsókn Hagstofu Íslands er áætlað að 205.200 manns á aldrinum 16–74 ára hafi að jafnaði verið á vinnumarkaði í apríl 2018, sem jafngildir 81,9% atvinnuþátttöku. Af þeim voru 196.000 starfandi og 9.200 án vinnu og í atvinnuleit. Hlutfall starfandi af mannfjölda var 78,3% en hlutfall atvinnulausra af vinnuafli var 4,5%.

Samanburður mælinga fyrir apríl 2017 og 2018 sýnir að vinnuaflið jókst um 6.700 manns en hlutfall þess af mannfjölda lækkaði um 1,1 prósentustig. Fjöldi starfandi jókst um 3.400 manns en hlutfall þeirra af mannfjölda lækkaði um 2,3 prósentustig.

Atvinnulausir voru um 3.300 fleiri en á sama tíma árið 2017 og hlutfall þeirra hækkaði um 1,5 prósentustig. Alls voru 45.300 utan vinnumarkaðar í apríl 2018 og hafði þeim fjölgað um 4.800 manns frá því í apríl 2017 þegar þeir voru 40.500.

Hér ber að geta þess að mælingin í apríl 2017 var óvenjuleg að því leyti að atvinnuleysi mældist þá mjög lágt og hlutfall starfandi hátt miðað við aðra mánuði á fyrri helmingi ársins 2017. Þetta verður að hafa í huga við samanburð ámilli ára.

Flæðirit — Vinnumarkaður 16–74 ára, apríl 2018


Samtala undirliða þarf ekki að koma heim við heildartölur vegna námundunar. Öryggisbil (95%), atvinnuleysi: Alls ±1,6; karlar ±2,2; konur ±2,3.

Árstíðaleiðrétt atvinnuleysi var 3,5% í apríl 2018
Íslenskur vinnumarkaður sveiflast reglulega milli mánaða vegna árstíðabundinna þátta. Samkvæmt árstíðaleiðréttum tölum var fjöldi fólks á vinnumarkaði 205.800 í apríl 2018. Atvinnuþáttaka var því 82,3% í apríl, og jókst um 0,3% frá því í mars. Áætlaður fjöldi atvinnulausra í apríl var samkvæmt árstíðaleiðréttingunni 7.200 og jókst um 1.900 manns frá áætluðum fjölda í mars.

Hlutfall atvinnulausra hækkaði því úr 2,6% í mars 2018 í 3,5% í apríl 2018, eða um 0,9 prósentustig.

Leiðrétt hlutfall starfandi fólks í apríl 2018 var 79,4%, sem er 0,5 prósentustigum lægra en það var í mars. Áætlaður fjöldi utan vinnumarkaðar lækkaði úr 44.900 í 44.200 á milli mánaða, eða um 700 manns.
Þrátt fyrir að einhverjar breytingar megi sjá bæði í mælingunni sjálfri og í árstíðaleiðréttum tölum þá sýnir leitni hlutfalls síðustu sex mánaða að allar vinnuaflstölur standa nánast í stað. Hvort heldur sem litið er til atvinnuþátttöku, hlutfalls starfandi, atvinnuleysis eða vinnustunda.

Framkvæmd
Apríl 2018 í vinnumarkaðsrannsókninni nær til fjögurra vikna, frá 2. apríl til og með 28. apríl. Í úrtak völdust af handahófi 1.553 einstaklingar á aldrinum 16–74 ára sem höfðu lögheimili á Íslandi. Þegar frá eru taldir þeir sem voru látnir eða reyndust búsettir erlendis var nettóúrtakið 1.520 einstaklingar. Alls fengust nothæf svör frá 964 einstaklingum sem jafngildir 63,4% svarhlutfalli.

Allar tölur hafa verið vegnar eftir kyni og aldri. Vikmörk mánaðarlegra niðurstaðna fyrir apríl 2018 um atvinnuþátttöku eru ±2,3 prósentustig, hlutfall starfandi ±2,6 prósentustig og atvinnuleysi ±1,6 prósentustig. Allar fjöldatölur eru námundaðar að næsta hundraði.

Tafla 1.  Vinnumarkaður í apríl — mæling
Öryggisbil Öryggisbil Öryggisbil
2016 (±95%) 2017 (±95%) 2018 (±95%)
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 83,8 2,3 83,0 2,6 81,9 2,3
Hlutfall starfandi 79,7 2,6 80,6 2,7 78,3 2,6
Atvinnuleysi 4,8 1,6 3,0 1,6 4,5 1,6
Vinnustundir 39,6 1,3 38,3 1,5 39,6 1,2
Vinnuafl 195.800 5.500 198.500 6.200 205.200 5.800
Starfandi 186.300 6.100 192.600 6.600 196.000 6.400
Atvinnulausir 9.500 3.200 5.900 2.800 9.200 3.200
Utan vinnumarkaðar 37.900 5.500 40.500 6.200 45.300 5.800
Áætlaður mannfjöldi 233.700 239.000 250.500
Tafla 2.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétting
nóv.17 des.17 jan.18 feb.18 mar.18 apr.18
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 81,9 82,8 83,1 81,0 82,0 82,3
Hlutfall starfandi 79,8 80,0 80,4 79,1 79,9 79,4
Atvinnuleysi 2,5 3,4 3,3 2,3 2,6 3,5
Vinnustundir 39,1 40,1 40,0 39,4 40,0 40,5
Vinnuafl 201.600 204.300 205.200 200.600 204.900 205.800
Starfandi 196.500 197.400 198.500 196.000 199.600 198.600
Atvinnulausir 5.100 6.900 6.700 4.600 5.300 7.200
Utan vinnumarkaðar 44.700 42.400 41.800 47.100 44.900 44.200
Áætlaður mannfjöldi 246.300 246.600 247.000 247.700 249.800 250.000
Tafla 3.  Vinnumarkaður síðustu 6 mánuði — árstíðaleiðrétt leitni
nóv.17 des.17 jan.18 feb.18 mar.18 apr.18
Alls 16–74 ára
Atvinnuþátttaka 82,2 82,2 82,3 82,3 82,3 82,3
Hlutfall starfandi 79,9 79,9 79,9 79,9 79,9 79,9
Atvinnuleysi 2,9 2,9 2,9 2,9 2,9 2,9
Vinnustundir 40,0 40,0 40,0 40,0 40,0 40,0
Vinnuafl 201.500 202.200 202.800 203.200 203.200 203.600
Starfandi 195.700 196.300 196.900 197.300 197.300 197.700
Atvinnulausir 5.800 5.900 5.900 5.900 5.900 5.900
Utan vinnumarkaðar 43.600 43.600 43.700 43.800 43.800 43.900
Áætlaður mannfjöldi 245.000 245.800 246.500 247.000 247.000 247.500

Talnaefni

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt