Bæjarstjórn Kópavogs samþykkti í gær tillögu um innleiðingu Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna í Kópavogi, samkvæmt tilkynningu. Allir ellefu bæjarfulltrúar voru flutningsmenn tillögunnar sem samþykkt var einum rómi.
Innleiðingin verður unnin í samstarfi við Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi, Unicef. Ekkert sveitarfélag á Íslandi hefur innleitt sáttmálann þó að þau vinni með margvíslegum hætti í anda hans við að tryggja réttindi barna.
Kópavogsbær verður annað sveitarfélagið á Íslandi sem vinna mun með Unicef á Íslandi að innleiðingu sáttmálans en Unicef er í samstarfi við Akureyrarbæ að innleiðingu barnasáttmálans. Akureyrarkaupstaður hóf innleiðingu sáttmálans í lok árs 2016 og var að ljúka öðru þrepi í innleiðingunni nýlega.
Fundur bæjarstjórnar Kópavogs var 79.fundur núverandi bæjarstjórnar og sá síðasti á kjörtímabilinu.