Gunnar Smári Egilsson, stofnandi Sósíalistaflokks Íslands, sem býður fram til borgarstjórnar, segir að borgarstjórinn Dagur B. Eggertsson sé í afneitun gagnvart húsnæðiskreppunni og vilji ekki sjá vandamálið. Hann skrifar færslu sína við frétt um að Samfylkingin hafi límt framboðsauglýsingu sína, með mynd af Degi, í glugga íbúðarhúsnæðis, líkt og Eyjan greindi frá. Auglýsingin var síðan fjarlægð vegna kvörtunar.
„Afneitun Dags B. og Samfylkingarinnar gagnvart húsnæðiskreppunni er algjör. Dagur sér ekki vandann vegna þess að hann vill ekki sjá hann. Í stað þess að byggja fyrir fólkið sem er í mestri neyð límir hann andlitsmyndir af sjálfum sér á ósamþykkt skjólið sem fólkið finnur sér. Eyðið ekki atkvæði ykkar á slíka frambjóðendur. Kjósið fólk sem þekkir vandann, ekki fólk sem sér ekki vandann og afneitar honum,“
segir Gunnar.
Minnt er á að Dagur B. Eggertsson borgarstjóri mun sitja fyrir svörum lesenda í beinni línu á Facebooksíðu DV klukkan 15 í dag .