fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Fagnaðarefni að fleiri tali og læri íslensku

Ritstjórn Eyjunnar
Mánudaginn 21. maí 2018 11:20

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Í tilefni af ársfundi Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum á dögunum opnaði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra vefgátt sem hýsir nýjustu gerð íslenskunámskeiðsins Icelandic Online. Sá vefur hefur nýst nemendum í íslensku, út um allan heim, síðan árið 2004 en skráðir notendur þar eru nú komnir yfir 200.000. Í kynningu sinni á verkefninu gat Úlfar Bragason rannsóknarprófessor þess að aldrei hefðu fleiri talað né kosið að læra íslensku en nú.

Ekki aðeins hafi notendum Icelandic Online vefjarins fjölgað jafnt og þétt gegnum árin heldur fjölgar þeim einnig sem leggja stund á íslenskunám við erlenda háskóla, sækja nám í íslensku við Háskóla Íslands og Háskólasetrið á Vestfjörðum og í námsflokkum víða um land. Námsbraut í íslensku sem öðru máli sem kennd er við HÍ nýtur einnig vaxandi vinsælda – nemendafjöldi hefur rúmlega tvöfaldast á síðustu 10 árum og stunduðu 380 nemendur þar nám á síðasta ári.

„Það er afar gleðilegt að fá svo góðar fréttir af íslenskunni – það vill brenna við að meira sé fjallað um ógnir sem henni tengjast en við þurfum að hampa því sem virkar og vel er gert,“

sagði Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra. Í ávarpi sínu ræddi hún sérstaklega um mikilvægi þess að líta ekki aðeins á örar tæknibreytingar sem áskorun fyrir íslenskuna heldur einnig tækifæri.

„Við þurfum að taka þátt í þróuninni og nýta nýjustu tækni til hagsbóta fyrir íslenskt málsamfélag og þá fjölmörgu sem vilja læra íslensku.“

Þar gat hún sérstaklega um börn og ungmenni af erlendum uppruna sem fjölgað hefur í skólakerfinu en um þessar mundir er einmitt unnið að því að aðlaga kennsluumhverfi Icelandic Online fyrir börn.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni

Varaþingmaður Samfylkingarinnar yfirgefur flokkinn – Segir Samfylkinguna hafa sofnað á mannréttindavaktinni
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður

Ólafur Þ. Harðarson: Þurfum mjög hæfan forseta – þarf alls ekki að vera stjórnmálamaður
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
EyjanFastir pennar
Fyrir 4 dögum

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni

Óttar Guðmundsson skrifar: Óæskilegt lesefni
Eyjan
Fyrir 6 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 6 dögum

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins

Þorsteinn Siglaugsson skrifar: Gervigreind og máttur tungumálsins