fbpx
Þriðjudagur 16.apríl 2024
Eyjan

Sigurður Ingi fundaði með finnskum kollega

Ritstjórn Eyjunnar
Miðvikudaginn 16. maí 2018 19:45

Anne Berner, samgönguráðherra Finnlands, og Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, á fundinum í morgun.

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Sigurður Ingi Jóhannsson, samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra, sem nú tekur þátt í opinberri heimsókn forseta Íslands til Finnlands, hitti í morgun finnska samgönguráðherrann Anne Berner. Á fundinum ræddum þau stöðu samgöngu- og sveitarstjórnarmála í ríkjunum tveimur. Þetta kemur fram í tilkynningu.

Sigurður Ingi og Anne Berner eru einnig samstarfsráðherrar Norðurlanda og ræddu þau norrænt samstarf og fyrirhugaða formennsku Íslands í Norrænu ráðherranefndinni sem hefst um næstu áramót. Þau voru sammála um að verulegur kraftur væri nú í Norðurlandasamstarfinu og að Ísland tæki við formennskunni á spennandi tímum. Margs konar stefnumótun og samstarf á norrænum vettvangi miðar að því að tryggja stöðu dreifðari byggða með samstarfi um fjarskipti og með því að skiptast á reynslu og góðum hugmyndum um atvinnusköpun í smærri bæjum.

Ráðherrarnir ræddu ýmis mál á fundi sínum, t.d. innleiðingu á 5G, ljósleiðaravæðingu og gervihnattaleiðsögukerfi á norðurslóðum. Í því sambandi var talað um Evrópska kerfið sem nær ekki yfir norðurslóðir og voru ráðherrarnir sammála um mikilvægi þess að gera kerfið nákvæmara og nauðsyn þess að lönd á norðurslóðum hefðu samvinnu við að bæta það. Þá ræddu þau siglingaöryggi og leiðir til að fjármagna samgöngur í framtíðinni.

Um hádegisbil tók Sigurður Ingi þátt í hringborðsumræðum á vegum forseta Íslands og forseta Finnlands, sem fram fóru í finnskum ísbrjóti. Í ávarpi sínu lagði ráðherra m.a. áherslu á mikilvægi þess að finna jafnvægið milli náttúruverndar og sjálfbærrar nýtingar náttúruauðlinda, það væri hægt og ætti að vera markmiðið.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 3 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda

Sigmundur Ernir skrifar: Trausti rúinn og reistur til valda
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?

Guðjón Auðunsson: Enn sérstakt áhættuálag á Ísland hjá erlendum fjárfestum – krónan þjóðhagslegt vandamál?
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra

Breskur þingmaður lenti í „hunangsgildru“ – Síðan gerði hann svolítið enn verra
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims

Rífandi gangur í stærsta hagkerfi heims
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“

Innmúraðir sjálfstæðismenn ósáttir við undirskriftalistann gegn Bjarna – „Stafrænt stríð“
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG

Orðið á götunni: „Samstaðan í ríkisstjórninni“ – sjálfstæðismenn og Framsókn reyndu allt til að losna við VG