fbpx
Fimmtudagur 25.apríl 2024
Eyjan

Ásmundur Einar: „Við verðum að forgangsraða í þágu barnanna“

Trausti Salvar Kristjánsson
Föstudaginn 6. apríl 2018 19:00

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Ásmundur Einar Daðason, félags- og jafnréttismálaráðherra

Á fundi ríkisstjórnarinnar í morgun gerði Ásmundur Einar Daðason félags- og
jafnréttismálaráðherra grein fyrir aðgerðum sem hann hefur nú til skoðunar til að bregðast
við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin vegna vaxandi fjölda barna og ungmenna með
fíknivanda. Um er að ræða annars vegar aðgerðir til að bregðast við bráðavanda og hins
vegar aðgerðir til lengri tíma.

Unglingum sem leita meðferðar hjá Barnaverndarstofu og hafa notað sprautur og
lyfseðilsskyld lyf til vímuefnaneyslu hefur fjölgað á undanförnum árum. Þá sýna tölur SÁÁ að
fleiri ungmenni leita til samtakanna vegna fíknivanda en áður. Það sem af er ári hafa 74
leitarbeiðnir borist lögreglu vegna týndra barna en í flestum tilfellum er um að ræða börn
sem nota vímuefni eða eiga við fíknivanda að etja. Þá hafa aldrei borist jafn margar
leitarbeiðnir í einum mánuði og í nýliðnum mars en þá var 34 barna leitað.

Forgangsraðað í þágu barna

„Við verðum að forgangsraða í þágu barnanna. Samfélag sem bregst ekki við svona þróun er
óábyrgt samfélag,“ segir Ásmundur Einar Daðason félags- og jafnréttismálaráðherra. Að mati
ráðherra er mikilvægt að gripa inn í þessa þróun sem allra fyrst og nú er til vinnslu að setja á
laggirnar tilraunaverkefni fyrir unglinga sem sótt hafa meðferðarúrræði en ekki náð tökum á
vanda sínum. Um væri að ræða sérhæft búsetuúrræði í framhaldi af vistun á
meðferðarheimili þar sem áhersla yrði lögð á eftirmeðferð og stuðning við aðlögun að
samfélaginu. Gert er ráð fyrir að einstaklingar geti dvalið í þessu úrræði til að minnsta kosti
18 ára aldurs og jafnvel lengur. Sérstökum verkefnahópi verður falið að vinna nánari útfærslu
á slíku úrræði og er gert ráð fyrir að niðurstöður hans liggi fyrir eftir tvær vikur.

Fjölgun úrræða fyrir börn í fíknivanda

Ráðherra kynnti jafnframt á ríkisstjórnarfundi í morgun að sett verði af stað vinna þar sem
horft verður til framtíðar og metið hvort þörf er á breyttum vinnubrögðum og hugsanlega
fjölgun úrræða fyrir börn í fíknivanda. Að höfðu samráði við marga þeirra aðila sem koma að
málefnum barna með fíknivanda hefur ráðherra ákveðið að skipa starfshóp til að kanna fleiri
og fjölbreyttari hugsanleg úrræði fyrir þennan hóp. Áætlað er að starfshópurinn skili
niðurstöðum sínum innan tveggja mánaða. „Ég hef átt fundi með fjölda foreldra,
félagasamtökum og stjórnvöldum og það er nauðsynlegt að grípa til aðgerða“.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 1 viku

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?

Orðið á götunni: Er Gallup vanhæft í aðdraganda forsetakosninganna?
Eyjan
Fyrir 1 viku

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn