fbpx
Þriðjudagur 23.apríl 2024
Eyjan

Róbert Trausti um varnargrein útvarspsstjóra: „Þetta er vitanlega hreint bull“ – „Magnús Geir veit betur!“

Ritstjórn Eyjunnar
Fimmtudaginn 26. apríl 2018 16:00

Róbert Trausti Árnason, fyrrverandi fréttastjóri Hringbrautar

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Róbert Trausti Árnason, fréttastjóri Hringbrautar og Náttfari,  segir að Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri, sem varði tilvistarrétt RÚV í grein í Morgunblaðinu í morgun, verði að rökstyðja mál sitt því hann viti betur. Magnús Geir hélt því fram í grein sinni að þó svo RÚV færi af auglýsingamarkaði, myndi það ekki bæta stöðu einkarekinna miðla:

„RÚV á að fara af auglýsingamarkaði samkvæmt tillögum nefndar á vegum menntamálaráðherra. Nefndin vill einnig að RÚV fari af fjárlögum. Magnús Geir Þórðarson útvarpsstjóri hefur skrifað varnargrein og vill ekki sleppa neinum tekjum sem renna nú til RÚV. Það er skiljanlegt út af fyrir sig en gera verður þá kröfu til manns í stöðu Magnúsar að hann rökstyðji mál sitt með faglegum hætti.

Það gerir hann ekki þegar hann heldur því fram að það myndi ekki bæta stöðu einkamiðla að RÚV færi út af auglýsingamarkaði! Þetta er vitanlega hreint bull. RÚV tekur til sín marga milljarða króna í auglýsingatekjur á ári. Ætlast útvarpsstjóri til þess að menn trúi því að milljarða auglýsingafé leitaði ekki annað ef það rynni ekki til RÚV?  Magnús Geir veit betur!“

segir Róbert og heldur áfram:

„Ef RÚV hyrfi af auglýsingamarkaði eins og nefnd ráðherra leggur til, þá ættu þeir milljarðar sem RÚV tekur til sín af auglýsingum að dreifast á aðra miðla. Væntanlega fengju aðrar stjónvarps-og útvarpsstöðvar mikinn hluta þeirra tekna. En ætla má að allir einkareknir miðlar fengju eitthvað til sín. Hagur allra myndi vænkast. Og ekki veitir af.“

Þá segir Róbert að RÚV geti skapað jafnvægi á auglýsingamarkaði, með brotthvarfi sínu þaðan:

„Lýðræðinu stendur ógn af því hve veikir einkareknir fjölmiðlar eru. Við höfum séð marga þeirra gefast upp og verða gjaldþrota. Nýjustu dæmin eru Fréttatími Gunnars Smára og sjónvarpsstöðin ÍNN. Þá urðu eigendaskipti nýlega á DV, Eyjunni, Pressunni og fleiri miðlum eftir að fyrri rekstraraðilar sigldu rekstrinum í strand. Til eru margar harmsögur íslenskra fjölmiðla áratugi aftur í tímann sem ekki er ástæða til að rifja upp nú. Alltaf hefur ríkið verið fyrirferðarmikið á auglýsingamarkaði með RÚV og hjálpað til við að kippa rekstrargrundvelli undan einkareknum miðlum.

Ágætt jafnvægi getur skapast með því að RÚV sé á sínum stað en án auglýsinga, stóru blöðin, Stöð 2 og Síminn ásamt nokkrum minni miðlum sem þurfa að hafa afl til að veita aðhald og auka breidd í fjölmiðlun hér á landi. Þá er að sjálfsögðu verið að vísa til okkar hér á Hringbraut, sjónvarpsstöðvarinnar N-4, DV, Pressunar, Eyjunar, Kjarnans og Stundarinnar.

Litlu, frjálsu, miðlarnir eru samviska þjóðarinnar. Það þarf að bæta rekstrargrundvöll þeirra með því að draga RÚV út af auglýsingamarkaði. Og það STRAX!“

Loks skorar Róbert á menntamálaráðherra að skrá sig á spjöld sögunnar, ólíkt fyrirrennurum sínum, sem „komu engu í verk“ :

„Ekki er eftir neinu að bíða. Lilja Alfreðsdóttir menntamálaráðherra hefur niðurstöður nefndarinnar fyrir framan sig. Nú reynir á hvort hún getur eitthvað og gerir eitthvað eða hvort hún bætist í röð þeirra menntamálaráðherra sem komu engu í verk á valdatíma sínum í ráðuneytinu. En þar er vitanlega vísað til Katrínar Jakobsdóttir, Illuga Gunnarssonar og Kristjáns Þórs Júlíussonar.“

 

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

EyjanFastir pennar
Fyrir 2 dögum

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig

Sigmundur Ernir skrifar: Flokkurinn sem yfirgaf sjálfan sig
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins

Ólafur Þ. Harðarson: Sjálfstæðismenn aðeins einu sinni fengið sinn forseta – sá var fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“

Sigurjón skammar smákóngana í stjórnsýslunni – „Það vita allir í kerfinu af þessari fyrirstöðu en aldrei skal hróflað við Smákónginum“
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki

Lindarhvoll: Leyndarhyggjan enn við lýði – svör berast seint, illa eða ekki
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn

Maskína: Alvarleg staða hjá 70 prósent þjóðarinnar – verðbólga og vextir vandinn
Eyjan
Fyrir 4 dögum

800 milljóna halli en þokast í rétta átt

800 milljóna halli en þokast í rétta átt
Eyjan
Fyrir 5 dögum

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma

Jón Gnarr: Forseti tali íslensku á alþjóðavettvangi – íslenskan á að fá að hljóma
Eyjan
Fyrir 6 dögum

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“

„Vopnið ykkur fyrir kosningarnar“