Samkvæmt svari utanríkisráðherra, Guðlaugs Þórs Þórðarsonar, við fyrirspurn Þorsteins Sæmundssonar, þingmanns Miðflokksins, um starfsmenn ráðuneytisins og stofnana á málefnasviði ráðherra, voru meðallaun starfsmanna hjá utanríkisráðuneytinu 10.7 milljónir króna árið 2017. Hæstu laun einstaks stafsmanns voru 20.7 milljónir.
Þá voru meðalheildarlaun starfsmanna sendiráða Íslands 9.3 milljónir og hæstu heildarlaun einstaks starfsmanns voru 15.7 milljónir.
Endurgreiddur ferðakostnaður og dagpeningar utanríkisráðuneytisins nam 97.2 milljónum og hæsta greiðslan til einstaks starfsmanns vegna ferða erlendis var 2.3 milljónir.