fbpx
Föstudagur 19.apríl 2024
Eyjan

Óli leiðir lista Vinstri grænna í Norðurþingi

Ritstjórn Eyjunnar
Þriðjudaginn 24. apríl 2018 14:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

V-listi Vinstri-grænna og óháðra í Norðurþingi hefur kynnt framboðslista til sveitarstjórnarkosninga
árið 2018. Óli Halldórsson leiðir listann, en þrjár konur skipa fimm efstu sætin.

 

Tilkynning VG:

V-listinn hefur verið leiðandi í sveitarstjórn Norðurþings á líðandi kjörtímabili. V-listinn hefur átt
stóran þátt í þeim mikla viðsnúningi sem náðst hefur í rekstri Norðurþings og komið mikilvægum
málum í framkvæmd á tímabilinu. Listinn býður nú fram með bæði reyndu og nýju fólki sem kemur
víða frá hinu víðfema svæði Norðurþings. Óli Halldórsson, formaður byggðarráðs Norðurþings á
líðandi kjörtímabili leiðir listann. Annað sæti listans skipar Kolbrún Ada Gunnarsdóttur kennari og
deildarstjóri, Berglind Hauksdóttir leikskólakennari í þriðja sæti og Sif Jóhannesdóttir þjóðfræðingur
og sveitarstjórnarmaður í fjórða sæti. Guðmundur H. Halldórsson málarameistari skipar fimmta
sætið og Röðull Reyr Kárason þjónustufulltrúi sjötta sætið.

V-listinn hefur nokkra sérstöðu meðal annarra framboða í Norðurþingi og víðar að því leyti að konur
eru í afgerandi meirihluta á listanum. Auk þess að konur skipi þrjú af fjórum efstu sætunum þá eru
þær 11 talsins á móti 7 körlum á listanum í heild. Með þessu vill V-listi Vinstri-grænna og óháðra sýna
í verki að tími sé kominn til að auka hlut kvenna í sveitarstjórnarmálum á Íslandi og draga fram þau
áherslumál sem konum eru hugleikin í almannaþjónustu og forgangsröðun almennt.
FJÖLSKYLDAN og UMHVERFIÐ eru megináherslumál V-listans í Norðurþingi árið 2018. Málefnaskrá
listans verður kynnt á Húsavík laugardaginn 28. apríl í tilefni af heimsókn Katrínar Jakobsdóttur
forsætisráðherra.

V- listi Vinstri græn og óháðir í Norðurþing fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018 er eftirfarandi:

1. Óli Halldórsson, Forstöðumaður Húsavík
2. Kolbrún Ada Gunnarsdóttir Grunnskólakennari Húsavík
3. Berglind Hauksdóttir Leikskólakennari Húsavík
4. Sif Jóhannesdóttir Þjóðfræðingur Húsavík
5. Guðmundur H. Halldórsson Málarameistari Húsavík
6. Röðull Reyr Kárason Þjónustufulltrúi Húsavík
7. Nanna Steina Höskuldsdóttir Verkefnastjóri og bóndi Raufarhöfn
8. Stefán L. Rögnvaldsson Bóndi Öxarfirði
9. Aldey Traustadóttir Hjúkrunarfræðingur Húsavík
10. Guðrún Sædís Harðardóttir Grunnskólakennari Reykjahverfi
11. Selmdís Þráinsdóttir Ìþròtta-og heilsufræðingur Húsavík
12. Silja Rún Stefánsdóttir Bústjóri Öxafirði
13. Aðalbjörn Jóhannsson Verkamaður Reykjahverfi
14. Jóna Birna Óskarsdóttir Leikskólaleiðbeinandi Húsavík
15. Aðalsteinn Örn Snæþórsson Lífræðingur Kelduhverfi
16. Sólveig Mikaelsdóttir Sérkennsluráðgjafi Húsavík
17. Trausti Aðalsteinsson Afgreiðslustjóri Húsavík
18. Þórhildur Sigurðardóttir Kennari Húsavík

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Pennar

Mest lesið

Nýlegt

Eyjan
Fyrir 3 dögum

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt

Guðjón Auðunsson: Verðið á íslensku fasteignafélögunum er allt of lágt
Eyjan
Fyrir 3 dögum

Orðið á götunni: Birgir í klemmu

Orðið á götunni: Birgir í klemmu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu

Jóhann Páll skrifar: Höggvum á skriffinnsku í heilbrigðiskerfinu
Eyjan
Fyrir 4 dögum

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“

Jón Gnarr um framboð Katrínar – „Þetta stríðir gegn einhverju sem mér finnst eðlilegt og rétt“